Bæjarráð - 3533
- Kl. 08:30 - 10:36
- Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 3533
Nefndarmenn
- Guðmundur Baldvin Guðmundssonformaður
- Matthías Rögnvaldsson
- Sigríður Huld Jónsdóttir
- Gunnar Gíslason
- Sóley Björk Stefánsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Eiríkur Björn Björgvinssonbæjarstjóri
- Katrín Björg Ríkarðsdóttiraðstoðarmaður bæjarstjóra ritaði fundargerð
Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar 2017-2020
Málsnúmer 2016050137Unnið að gerð fjárhagsáætlunar.
Dan Jens Brynjarsson fjármálastjóri sat fund bæjarráðs undir þessum lið.
Einnig sátu fundinn undir þessum lið bæjarfulltrúarnir Dagbjört Elín Pálsdóttir S-lista og Eva Hrund Einarsdóttir D-lista.Álagning gjalda - útsvar 2017
Málsnúmer 2016110138Lögð fram tillaga um útsvarsprósentu í staðgreiðslu opinberra gjalda á árinu 2017 í Akureyrarkaupstað.
Dan Jens Brynjarsson fjármálastjóri sat fund bæjarráðs undir þessum lið.Bæjarráð samþykkir hámarksútsvarsprósentu, 14,52%, fyrir árið 2017 og vísar tillögunni til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar 2016-2019 - viðauki
Málsnúmer 2015040196Lagður fram viðauki nr. 4.
Dan Jens Brynjarsson fjármálastjóri sat fund bæjarráðs undir þessum lið.Bæjarráð samþykkir framlagðan viðauka og vísar honum til staðfestingar í bæjarstjórn.
Reglur um réttindi, skyldur og launakjör embættismanna Akureyrarbæjar - endurskoðun
Málsnúmer 2016110076Tekið fyrir að nýju, áður á dagskrá bæjarráðs 24. nóvember 2016:
Tekið fyrir að nýju, áður á dagskrá bæjarráðs 17. nóvember sl.
Lögð fram drög að breytingum á reglum um réttindi, skyldur og launakjör embættismanna Akureyrarbæjar.Bæjarráð samþykkir reglurnar og felur bæjarstjóra og kjarasamninganefnd að koma þeim til framkvæmda.
Bandalag íslenskra skáta - 15th World Scout Moot 26.- 29. júlí 2017
Málsnúmer 2016100036Tekið fyrir að nýju, bæjarráð fól á fundi sínum þann 27. október sl. bæjarstjóra að kalla eftir frekari upplýsingum um málið.
Bæjarráð frestar afgreiðslu.
Þróun fasteignamats atvinnuhúsnæðis og álagning fasteignaskatta
Málsnúmer 2016090154Tekið fyrir að nýju, áður á dagskrá bæjarráðs 24. nóvember 2016:
Erindi dagsett 15. nóvember 2016 frá Félagi atvinnurekenda (FA) þar sem óskað er eftir rökstuðningi Akureyrarkaupstaðar fyrir beitingu heimilda í lögum til að leggja álag á fasteignaskatt á atvinnuhúsnæði. Að auki óskar FA upplýsinga um hvort kostnaðarmat liggi að baki ákvörðunar sveitarfélagsins að beita álagsheimildinni.Bæjarráð felur bæjarstjóra og fjármálastjóra að undirbúa svar og frestar afgreiðslu til næsta fundar.