Félagsmálaráð - 1167
- Kl. 14:00 - 17:00
- Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
- Fundur nr. 1167
Nefndarmenn
- Inda Björk Gunnarsdóttirformaður
- Dagur Fannar Dagssonvaraformaður
- Oktavía Jóhannesdóttir
- Valur Sæmundsson
- Sif Sigurðardóttir
- Guðlaug Kristinsdóttiráheyrnarfulltrúi
- Valdís Anna Jónsdóttiráheyrnarfulltrúi
- Bryndís Dagbjartsdóttirfundarritari
Fjárhagserindi 2013 - áfrýjanir
Málsnúmer 2013010061Elínborg Sigríður Freysdóttir ráðgjafi á fjölskyldudeild kynnti áfrýjun í fjárhagsaðstoð.
Áfrýjanir og afgreiðsla þeirra eru færðar í trúnaðarbók félagsmálaráðs.
Formúlan - Vinnumarkaðsþjálfun fyrir ungt fólk 2013
Málsnúmer 2013050310Lögð fram til kynningar drög að samstarfssamningi milli samfélags- og mannréttindadeildar og fjölskyldudeildar um vinnumarkaðsþjálfun fyrir ungt fólk sem fær fjárhagsaðstoð frá Akureyrarbæ.

Félagsmálaráð þakkar kynninguna.

Sérfræðiþjónusta við skóla
Málsnúmer 2010030028Karólína Gunnarsdóttir þjónustustjóri á fjölskyldudeild og Þuríður Sigurðardóttir félagsráðgjafi á skóladeild mættu á fundinn og gerðu grein fyrir skýrslu starfshóps um endurskoðun á sérfræðiþjónustu Akureyrarbæjar í málefnum barna og ungmenna dags. 18. júní 2013.
Félagsmálaráð þakkar Karólínu og Þuríði fyrir kynningu á efni skýrslunnar og starfshópnum fyrir vel unnin störf og felur framkvæmdastjórum fjölskyldudeildar og heilsugæslu að halda áfram með úrvinnsluna.
Félagsmálaráð - rekstraryfirlit 2013
Málsnúmer 2013010124Guðrún Sigurðardóttir framkvæmdastjóri fjölskyldudeildar, Heiðrún Björgvinsdóttir rekstrarstjóri ÖA, Soffía Lárusdóttir framkvæmdastjóri búsetudeildar og Margrét Guðjónsdóttir framkvæmdastjóri heilsugæslustöðvar fóru yfir fimm mánaða rekstur sinna deilda.

Félagsmálaráð þakkar upplýsingarnar.

Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar 2014-2017
Málsnúmer 2013050198Fjárhagsáætlunarferlið og forsendur og rammi vegna fjárhagsáætlunar fyrir þær deildir er heyra undir félagsmálaráð (102) lagt fram til kynningar.

Samband íslenskra sveitarfélaga - félagsþjónustunefnd
Málsnúmer 2012020043Valdís Anna Jónsdóttir áheyrnarfulltrúi vék af fundi kl. 16:38
Lagðar fram til kynningar 11. - 17. fundargerð félagsþjónustunefndar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá árinu 2012 og 2013.

Yfirfærsla á málefnum fatlaðra til sveitarfélaga
Málsnúmer 2009110111Fundargerð 13. fundar bakhóps vegna yfirfærslu málefna fatlaðs fólks frá ríki til sveitarfélaga haldinn 22. febrúar 2013 lögð fram til kynningar.
Félag eldri borgara á Akureyri - samkomulag
Málsnúmer 2008010206Fundargerð samráðsfundar Félags eldri borgara og fulltrúa búsetudeildar Akureyrarbæjar lögð fram til kynningar og umræðu.

Framkvæmdastjóra búsetudeildar falið að fylgja eftir ábendingum.

Félagsmálaráð - starfsemi 2010-2014
Málsnúmer 2010060081Fundaráætlun félagsmálaráðs ágúst til desember 2013 lögð fram til samþykktar

Félagsmálaráð samþykkir fundaráætlunina.