Velferðarráð - 1209
- Kl. 14:15 - 16:05
- Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
- Fundur nr. 1209
Nefndarmenn
- Sigríður Huld Jónsdóttirformaður
- Jóhann Gunnar Sigmarsson
- Halldóra Kristín Hauksdóttir
- Heiðrún Ósk Ólafsdóttir
- Valur Sæmundsson
- Guðrún Karitas Garðarsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Guðrún Ólafía Sigurðardóttirframkvæmdastjóri
- Soffía Lárusdóttirframkvæmdastjóri
- Halldór Sigurður Guðmundssonframkvæmdastjóri
- Kristbjörg Björnsdóttirfundarritari
Fjárhagsaðstoð 2015
Málsnúmer 2015010058Lagt fram til kynningar yfirlit yfir veitta fjárhagsaðstoð fyrstu fjóra mánuði ársins.
Grófin - geðverndarmiðstöð - styrkumsókn 2015
Málsnúmer 2015040171Lögð fram styrkbeiðni dagsett 21. apríl 2015 frá Grófinni - geðverndarmiðstöð.
Velferðarráð samþykkir að styrkja Grófina - geðverndarmiðstöð um kr. 250.000 til fræðslustarfa.
Samtök um sorgarviðbrögð Norðurlandi eystra - styrkbeiðni 2015
Málsnúmer 2015040186Lögð fram styrkbeiðni dagsett 7. apríl 2015 frá Samtökum um sorg og sorgarviðbrögð (Samhygð).
Velferðarráð samþykkir að styrkja Samtök um sorgarviðbrögð Norðurlandi eystra (Samhygð) um kr. 200.000 til fræðslustarfa.
Vinnuhópur um sértækt hópastarf - óhefðbundið skólaúrræði í Rósenborg
Málsnúmer 2014090198Helga Vilhjálmsdóttir forstöðumaður og Ottó Karl Tulinius félagsráðgjafi kynntu vinnuhóp um sértækt hópastarf - óhefðbundið skólaúrræði í Rósenborg. Meðfylgjandi er yfirlitsblað, stutt lýsing á úrræðinu ásamt umsóknareyðublaði og þrepaskiptingu verkefna.
Öldrunarráð Íslands - aðalfundur 2015
Málsnúmer 2015050069Lagt fram til kynningar aðalfundarboð Öldrunarráðs Íslands, sem haldinn er í dag 20. maí, í Reykjavík.
Öldrunarrými - biðlisti 2015
Málsnúmer 2015020099Anna Marit Níelsdóttir verkefnastjóri í búsetudeild, Soffía Lárusdóttir framkvæmdastjóri búsetudeildar og Halldór Sigurður Guðmundsson framkvæmdastjóri ÖA, lögðu fram til kynningar upplýsingar um stöðuna á biðlista eftir hjúkrunar- og dvalarrýmum á Akureyri.
Búsetustefna - framkvæmd 2015
Málsnúmer 2015050119Soffía Lárusdóttir framkvæmdastjóri búsetudeildar lagði fram minnisblað dagsett 20. maí 2015 um þörf á breytingum á búsetuþjónustu við fólk sem þarf á þjónustu að halda inn á heimili sitt.