Velferðarráð - 1238
- Kl. 14:00 - 16:30
- Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
- Fundur nr. 1238
Nefndarmenn
- Sigríður Huld Jónsdóttirformaður
- Róbert Freyr Jónsson
- Halldóra Kristín Hauksdóttir
- Svava Þórhildur Hjaltalín
- Valur Sæmundsson
- Guðrún Karitas Garðarsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Guðrún Ólafía Sigurðardóttirframkvæmdastjóri
- Jón Hrói Finnssonframkvæmdastjóri búsetudeildar
- Kristbjörg Björnsdóttirfundarritari
Fjárhagsaðstoð 2016
Málsnúmer 2016010029Lagt fram til kynningar yfirlit yfir veitta fjárhagsaðstoð fyrstu níu mánuði ársins.
Anna Marit Níelsdóttir forstöðumaður félagsþjónustu hjá fjölskyldudeild sat fundinn undir þessum lið.Lagt fram til kynningar og starfsfólki falið að greina þjónustuþörfina frekar.
Leiguíbúðir Akureyrarbæjar 2016
Málsnúmer 2016010028Jón Heiðar Daðason húsnæðisfulltrúi kynnti stöðuna á biðlista eftir leiguhúsnæði Akureyrarbæjar 30. september 2016.
Anna Marit Níelsdóttir forstöðumaður félagsþjónustu og Karólína Gunnarsdóttir þjónustustjóri á fjölskyldudeild sátu fundinn undir þessum lið.Húsnæðismál einstaklinga
Málsnúmer 2008050029Jón Heiðar Daðason húsnæðisfulltrúi gerði grein fyrir húsnæðismáli einstaklings.
Lagt fram minnisblað dagsett 19. október 2016.
Anna Marit Níelsdóttir forstöðumaður félagsþjónustu og Karólína Gunnarsdóttir þjónustustjóri á fjölskyldudeild sátu fundinn undir þessum lið.Málefni einstaklinga eru bókuð í trúnaðarbók velferðarráðs.
Notendaráð í málaflokki fatlaðra
Málsnúmer 2016050124Óskað hefur verið eftir tilnefningum í notendaráð í málaflokki fatlaðra. Velferðarráð þarf að tilnefna sinn fulltrúa í ráðið.
Karólína Gunnarsdóttir þjónustustjóri á fjölskyldudeild sat fundinn undir þessum lið.Velferðarráð tilnefnir Róbert Frey Jónsson sem aðalmann og Sigríði Huld Jónsdóttur sem varamann í notendaráðið.
CONNECT - verkefnið
Málsnúmer 2014060231Lagt fram minnisblað dagsett 17. október sl. frá framkvæmdastjóra Öldrunarheimila Akureyrarbæjar, Halldóri S Guðmundssyni, þar sem reifaðar eru hugmyndir um skipan vinnuhópa sem vinni að frekari útfærslu og þarfagreiningum um velferðartækni. Lagt er til að skipaðir verði þrír hópar, einn á hverju sviði, enda kunni áherslur að vera eitthvað ólíkar.
Velferðarráð Akureyrar samþykkir að settir verði á fót vinnuhópar um velferðartækni á hverju sviði, þ.e. búsetudeild, fjölskyldudeild og á Öldrunarheimilum Akureyrarbæjar. Verkefni hópanna verði samhæfð og framkvæmdastjórum falið að vinna drög að erindisbréfi fyrir vinnuhópana í takti við áherslur fyrirliggjandi minnisblaðs og leggja fyrir næsta fund velferðarráðs. Hópunum verði ætlaður 12 mánaða starfstími, þá skuli fundargerðir þeirra kynntar í velferðarráði. Með hliðsjón af skilgreindum fösum eða þrepum sem Connect verkefnið vinnur með, verði hópunum falið að vinna að og móta framtíðarsýn, aðgerðaáætlun ásamt samskiptaáætlun og þarfagreiningu fyrir viðkomandi deild/starfseiningu út frá áherslum á velferðartækni. Leitast verði við að skýra og greina hverju mögulega megi fá breytt og áorkað með slíkum breytingum. Að ári liðnu verði framvindan metin og áherslur og vinnulag endurmetið.
Búsetudeild - Jörvabyggð
Málsnúmer 2016050255Í ágúst síðastliðnum var bætt við næturvakt og aukið við mönnun um helgar í búsetukjarnanum við Jörvabyggð. Þær aðstæður sem brugðist var við með ofangreindum hætti eru enn til staðar.
Kostnaður er áætlaður 1,6 mkr. á mánuði. Heildarkostnaður vegna viðbótarinnar er um 6,5 mkr. á yfirstandandi ári. Framkvæmdastjóri búsetudeildar óskar eftir að fjárheimildir kostnaðarstöðvarinnar verði auknar um 6,5 mkr. til að mæta kostnaðinum.Velferðarráð samþykkir fyrir sitt leiti að fjárheimildir búsetudeildar vegna kostnaðarstöðvar 1025590 verði auknar um 6,5 mkr. og vísar erindinu til bæjarráðs.
Starfsáætlanir með fjárhagsáætlun 2017
Málsnúmer 2016090099Starfsáætlanir búsetudeildar, fjölskyldudeildar og ÖA sem fjallað var um á síðasta fundi og framkvæmdastjórar hafa unnið að og skilað til hagsýslu bæjarins, lagðar fram til kynningar og staðfestingar.
Velferðarráð - vinabæjasamskipti 2016
Málsnúmer 2016030169Róbert Freyr Jónsson varaformaður velferðarráðs og Kristinn Már Torfason forstöðumaður hjá búsetudeild sögðu frá ferð sinni á vinabæjamót í Randers í Danmörku 15.- 17. júní 2016.
Velferðarráð þakkar fyrir kynninguna.
Velferðarstefna 2014-2018
Málsnúmer 2015010191Velferðarráð fór yfir vinnu við gerð velferðarstefnu fyrir árin 2017-2021.
Þessum lið var frestað á fundi 7. september 2016.