Framkvæmdaráð - 236
- Kl. 08:22 - 10:00
- Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 236
Nefndarmenn
- Oddur Helgi Halldórssonformaður
- Sigríður María Hammer
- Silja Dögg Baldursdóttir
- Sigfús Arnar Karlsson
- Njáll Trausti Friðbertsson
- Helgi Már Pálssonbæjartæknifræðingur
- Jón Birgir Gunnlaugssonforstöðumaður umhverfismála
- Tómas Björn Haukssonforstöðumaður gatna, fráveitu- og hreinlætismála
- Bergur Þorri Benjamínssonfundarritari
Fjáhagsáætlun 2011 - framkvæmdadeild
Málsnúmer 2011080050Farið var yfir stöðu framkvæmda ársins og forgangsröðun endurmetin.\nBæjartæknifræðingur ásamt forstöðumönnum gatna- og umhverfismála fóru yfir rauntölur vegna framkvæmda yfirstandandi árs.

Framkvæmdaráð samþykkir að færa til framkvæmdir innan fjárhagsramma í samræmi við umræður á fundinum.

Slökkvilið Akureyrar - starfsmannamál
Málsnúmer 2011050139Framhald umræðu frá síðasta fundi.

Framkvæmdaráð samþykkir að starfsmanna- og stjórnendafundir slökkviliðs verði haldnir samkvæmt tillögu vinnuhópa út árið 2011. Unnið verði áfram með aðrar tillögur vinnuhópanna og þeim síðan vísað til gerðar fjárhagsáætlunar 2012.

Melateigur - umferðarmál
Málsnúmer 2007100039Framkvæmdaráð hefur á fundi þann 30. apríl 2010 vísað til skipulagsnefndar b) lið úr 3. lið fundargerðar bæjarráðs frá 21. apríl 2010 þar sem íbúi mætti í viðtalstíma bæjarfulltrúa og vildi benda á mikinn umferðarþunga á Kjarnagötu við Naustaskóla, sem skapar hættu fyrir skólabörn sem þurfa þar yfir. Kjarnagata er hönnuð sem 30 km gata í deiliskipulagi Naustahverfis. Samkvæmt deiliskipulaginu er gert ráð fyrir hraðatakmarkandi aðgerðum á aðkomuleiðum fyrir börn á leið í Naustaskóla m.a. með sérmerktum gangbrautarsvæðum og upphækkunum. Skipulagsnefnd vísaði erindinu á fundi sínum þann 9. júní 2010 til framkvæmdadeildar og leggur til að framkvæmdum við lokafrágang götunnar við Naustaskóla verði hraðað.

Framkvæmdaráð samþykkir að fara í framkvæmdir við lokafrágang Kjarnagötu við Naustaskóla, ef svigrúm er á fjárveitingu ársins til umferðaröryggismála.