Bæjarráð - 3548
- Kl. 08:30 - 12:20
- Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 3548
Nefndarmenn
- Guðmundur Baldvin Guðmundssonformaður
- Dagbjört Elín Pálsdóttir
- Matthías Rögnvaldsson
- Gunnar Gíslason
- Preben Jón Pétursson
- Sóley Björk Stefánsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Dagný Magnea Harðardóttirfundarritari
Ársreikningur Akureyrarbæjar fyrir árið 2016
Málsnúmer 2016080102Lagður fram ársreikningur Akureyrarbæjar fyrir árið 2016.
Aðalsteinn Sigurðsson endurskoðandi frá Deloitte ehf mætti á fund bæjarráðs undir þessum lið og skýrði ársreikninginn.
Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.
Einnig sat bæjarfulltrúinn Eva Hrund Einarsdóttir D-lista fundinn undir þessum lið.Bæjarráð vísar ársreikningi Akureyrarbæjar fyrir árið 2016 til fyrri umræðu í bæjarstjórn.
Viðaukar - reglur
Málsnúmer 2017020133Tekið fyrir að nýju, áður á dagskrá bæjarráðs 9. mars sl. en þá frestaði bæjarráð afgreiðslu málsins.
Lögð fram drög að reglum um gerð og meðferð viðauka við fjárhagsáætlun.
Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.Bæjarráð samþykkir framlagða tillögu að reglum um gerð og meðferð viðauka við fjárhagsáætlun.
Bæjarráð óskar eftir að reglurnar verði kynntar í öllum ráðum og stjórnum bæjarins.Fylgiskjöl
Lögreglusamþykkt fyrir Akureyrarkaupstað - endurskoðun
Málsnúmer 20170201133. liður í fundargerð skipulagsráðs dagsett 8. mars 2017:
Tekið er til umræðu hvort þörf sé á að endurskoða lögreglusamþykkt fyrir Akureyrarkaupstað, m.a. hvað varðar umferð, númerslausa bíla og lagningu vinnuvéla í húsagötum.
Skipulagsráð beinir því til bæjarstjórnar að lögreglusamþykktin verði endurskoðuð.Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna að endurskoðun á lögreglusamþykktinni í samvinnu við lögmann.
Mánaðarskýrsla bæjarráðs um starfsmanna- og launamál 2017
Málsnúmer 2017020065Lögð fram til kynningar mánaðarskýrsla um stöðugildi, yfirvinnu og fleira.
Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri stjórnsýslusviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.Nefndalaun - breytingar á reglum
Málsnúmer 2015110142Rætt um breytingar á reglum um nefndalaun.
Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri stjórnsýslusviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.Bæjarráð frestar afgreiðslu.
Preben Jón Pétursson Æ-lista vék af fundi kl. 11:45.
Gæðastefna Akureyrarbæjar
Málsnúmer 2017030114Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri stjórnsýslusviðs lagði fram tillögu og minnisblað vegna gerðar gæðastefnu fyrir Akureyrarbæ.
Bæjarráð samþykkir að farið verði í undirbúningsvinnu við gerð gæðastefnu fyrir Akureyrarbæ og að áætlun um innleiðinguna verði lögð fyrir bæjarráð í maí nk.
Hverfisnefnd Brekku og Innbæjar - fundargerð
Málsnúmer 2016010038Lögð fram fundargerð aðalfundar hverfisnefndar Brekku og Innbæjar dagsett 2. mars 2017.
Fundargerðina má finna á netslóðinni:
https://www.akureyri.is/is/stjornkerfid/hverfisnefndir/brekka-og-innbaer/fundargerdirBæjarráð vísar 5. lið a, b, c, e, f og g til umhverfis- og mannvirkjasviðs, 5. lið d til skipulagssviðs, 1.- 4. liður eru lagðir fram til kynningar í bæjarráði.
Fylgiskjöl
Lánasjóður sveitarfélaga - aðalfundur 2017
Málsnúmer 2017030090Erindi ódagsett frá Lánasjóði sveitarfélaga ohf, þar sem boðað er til aðalfundar föstudaginn 24. mars 2017 kl. 16:00 á Grand Hótel Reykjavík. Vakin er athygli á því að rétt til að sækja aðalfund eiga allir sveitarstjórnarmenn.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að fara með umboð Akureyrarbæjar á fundinum.
Fylgiskjöl
Frumvarp til laga um orlof húsmæðra (afnám laganna), 119. mál
Málsnúmer 2017030109Lagt fram til kynningar erindi dagsett 10. mars 2017 frá allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis þar sem óskað er umsagnar um frumvarp til laga um orlof húsmæðra (afnám laganna), 119. mál 2017.
Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 24. mars nk. á netfangið nefndasvid@althingi.is.
Þingskjalið er hægt að sækja á vef Alþingis: http://www.althingi.is/altext/146/s/0178.htmlFylgiskjöl