Félagsmálaráð - 1181
- Kl. 14:00 - 17:00
- Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
- Fundur nr. 1181
Nefndarmenn
- Dagur Fannar Dagssonformaður
- Tryggvi Þór Gunnarsson
- Oktavía Jóhannesdóttir
- Sif Sigurðardóttir
- Valur Sæmundsson
- Guðlaug Kristinsdóttiráheyrnarfulltrúi
- Þráinn Brjánssonfundarritari
Fjárhagserindi 2014 - áfrýjanir
Málsnúmer 2014010041Selma Heimisdóttir og Snjólaug Jóhannesdóttir félagsráðgjafar kynntu áfrýjanir í fjárhagsaðstoð.

Áfrýjanir og afgreiðsla þeirra eru færðar í trúnaðarbók félagsmálaráðs.

Fjölskyldudeild - einstaklingsmál 2014
Málsnúmer 2014030045Lagt fyrir til kynningar málefni einstaklings sem notið hefur þjónustu fjölskyldu- og húsnæðisdeildar.
Bókanir vegna einstaklingsmála eru færðar í trúnaðarbók félagsmálaráðs.
Fjárhagsaðstoð 2014
Málsnúmer 2014010040Lagt fram til kynningar yfirlit yfir veitta fjárhagsaðstoð fyrstu tvo mánuði ársins 2014.

Bæjarstjórn Akureyrar og borgarstjórn Reykjavíkur - samstarfsvettvangur
Málsnúmer 2013020193Kynnt tillaga að samstarfi bæjarstjórnar Akureyrar og borgarstjórnar Reykjavíkur sem samþykkt var á sameiginlegum fundi 7. febrúar 2014. Lögð fram greinargerð með tillögunni.

Félagsmálaráð þakkar kynninguna.

Fjölskyldudeild - kynning á starfsemi 2014
Málsnúmer 2014010016Áskell Örn Kárason forstöðumaður barnaverndar kynnti stöðu mála varðandi vanda barna með fötlun/geðsjúkdóm og erfiða hegðun og Elín Sigurbjörg Jónsdóttir og Elva Haraldsdóttir sérkennsluráðgjafar kynntu námskeið sem haldin hafa verið um einhverfu.
Félagsmálaráð þakkar kynningarnar.
Framtíðarþing um farsæla öldrun - samstarf?
Málsnúmer 2014030008Lagt fram erindi dags. 18. febrúar 2014 frá Öldrunarráði Íslands þar sem leitað er eftir samstarfi við Akureyrarbæ/félagsmálaráð um að efna til framtíðarþings um farsæla öldrun.

Félagsmálaráð tekur jákvætt í erindið og felur framkvæmdastjóra ÖA að vinna áfram að málinu.

Sjúkrahúsið á Akureyri - þjónusta öldrunarlækna
Málsnúmer 2013120021Lagt fram til kynningar bréf frá Sjúkrahúsinu á Akureyri dags. 28. febrúar 2014 þar sem óskað er endurskoðunar á samningi um þjónustu sérfræðilækna og vaktlækna við ÖA. Framkvæmdastjóri ÖA reifaði stöðu viðræðna við SAk um endurskoðun samningsins.