Stjórn Akureyrarstofu - 194
10.09.2015
Hlusta
- Kl. 16:15 - 18:11
- Fundarherbergi Akureyrarstofu í menningarhúsinu Hofi
- Fundur nr. 194
Nefndarmenn
- Logi Már Einarssonformaður
- Anna Hildur Guðmundsdóttir
- Sigfús Arnar Karlsson
- Eva Hrund Einarsdóttir
- Hildur Friðriksdóttir
- Eva Dögg Fjölnisdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Þórgnýr Dýrfjörðfundarritari
Fjárhagsáætlun Akureyrarstofu 2016
Málsnúmer 2015080026Unnið að fjárhagsáætlun fyrir málaflokka stjórnarinnar og verður vinnunni haldið áfram á næsta fundi.
Framkvæmdayfirlit - menningarmál og atvinnumál 2016-2021
Málsnúmer 2015090038Fasteignir Akureyrarbæjar hafa óskað eftir því að nefndir og ráð taki til umfjöllunar hvort og hvaða framkvæmdir eru fyrirhugaðar í málaflokkum þeirra á ofangreindu tímabili. Núverandi framkvæmdayfirlit er meðfylgjandi. Lagt fram til kynningar. Umræðum haldið áfram á næsta fundi.
WAPP (Walking app)
Málsnúmer 2015090046Erindi dags 25. ágúst 2015 frá Einari Skúlasyni þar sem óskað er eftir samstarfi við Akureyrarbæ um leiðsögn á gönguleiðum í nýju þar til gerðu smáforriti.
Stjórn Akureyrarstofu heimilar að gerður verði tilraunasamningur um verkefnið í samræmi við umræður á fundinum.