Framkvæmdaráð - 253
- Kl. 09:15 - 12:15
- Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 253
Nefndarmenn
- Oddur Helgi Halldórssonformaður
- Helgi Snæbjarnarson
- Ólafur Jónsson
- Sigfús Arnar Karlsson
- Andrea Sigrún Hjálmsdóttiráheyrnarfulltrúi
- Bjarni Sigurðssonáheyrnarfulltrúi
- Jón Ingi Cæsarssonáheyrnarfulltrúi
- Helgi Már Pálssonbæjartæknifræðingur
- Tómas Björn Haukssonforstöðumaður gatna, fráveitu- og hreinlætismála
- Jón Birgir Gunnlaugssonfundarritari
Fækkun sela - notkun hljóðdempara á riffli
Málsnúmer 2012050183Lagt fram erindi frá Davíð Jens Hallgrímssyni (tölvupóstur frá 30.4.2012) þar sem hann óskar eftir leyfi til að nota hljóðdempara á riffil, en hann sér um að halda fjölda sela í lágmarki í og við ósa Eyjafjarðarár.

Framkvæmdaráð frestar ákvörðun.

Hafnasamlag Norðurlands - bílastæði fyrir bílaleigubíla - Strandgata austan Hjalteyrargötu
Málsnúmer 2012060071Lagt fram erindi dags. 5. júní 2012, frá hafnarstjóra f.h. Hafnasamlags Norðurlands bs, þar sem óskað er eftir að leigja 10 bílastæði við Strandgötu. Um tímabundna leigu er að ræða.

Framkvæmdaráð samþykkir erindið og felur bæjartæknifræðingi að ganga frá leigusamningi.

Snjómokstur og hálkuvarnir 2010-2012 - útboð
Málsnúmer 2010090064Rætt var um fyrirkomulag á snjómokstri og möguleika á framlengingu núgildandi útboðs og hugsanlegar breytingar.

Framkvæmdaráð samþykkir að framlengja núverandi verksamninga um eitt ár.