Bæjarráð - 3319
- Kl. 09:00 - 11:07
- Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 3319
Nefndarmenn
- Oddur Helgi Halldórssonformaður
- Halla Björk Reynisdóttir
- Tryggvi Þór Gunnarsson
- Hermann Jón Tómasson
- Ólafur Jónsson
- Andrea Sigrún Hjálmsdóttiráheyrnarfulltrúi
- Guðmundur Baldvin Guðmundssonáheyrnarfulltrúi
- Sigurður Guðmundssonáheyrnarfulltrúi
- Dan Jens Brynjarssonfjármálastjóri
- Jón Bragi Gunnarssonhagsýslustjóri
- Heiða Karlsdóttirfundarritari
Grímsstaðir á Fjöllum
Málsnúmer 2012050037Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson framkvæmdastjóri Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar mætti á fund bæjarráðs.\nBoðað hefur verið til stofnfundar á einkahlutafélagi, sem verður í eigu sveitarfélaga á Norðurlandi. Tilgangur félagsins er að undirbúa möguleg kaup og leigu á jörðinni Grímsstöðum á Fjöllum.
<DIV><P>Bæjarráð samþykkir með 4 atkvæðum gegn atkvæði Ólafs Jónssonar D-lista, að taka þátt í stofnun félagsins og felur formanni bæjarráðs, Oddi Helga Halldórssyni, að fara með umboð Akureyrarkaupstaðar á fundinum.</P></DIV>
Málræktarsjóður - aðalfundur 2012
Málsnúmer 2012050004Erindi dags. 30. apríl 2012 frá framkvæmdastjóra Málræktarsjóðs. Aðalfundur Málræktarsjóðs verður haldinn föstudaginn 1. júní nk. kl. 15:30 á Hótel Sögu, Snæfelli. Akureyrarbær á rétt á að tilnefna einn mann í fulltrúaráðið.
Bæjarráð tilnefnir Hólmkel Hreinsson sem aðalmann og Þórgný Dýrfjörð sem varamann í fulltrúaráðið og felur Hólmkeli að fara með umboð Akureyrarbæjar á aðalfundinum.Skákfélag Akureyrar - styrkbeiðni
Málsnúmer 2012050040Lagður fram tölvupóstur dags. 7. maí 2012 frá Skákfélagi Akureyrar þar sem sótt er um styrk að upphæð kr. 150.000 til að halda Skákþing Norðlendinga á Akureyri dagana 25.- 28. maí nk.
<DIV><DIV>Bæjarráð samþykkir styrk að upphæð kr. 150.000. </DIV></DIV>