Stjórn Akureyrarstofu - 179
- Kl. 16:15 - 18:00
- Fundarherbergi Akureyrarstofu í menningarhúsinu Hofi
- Fundur nr. 179
Nefndarmenn
- Logi Már Einarssonformaður
- Elvar Smári Sævarsson
- Anna Hildur Guðmundsdóttir
- Eva Hrund Einarsdóttir
- Hildur Friðriksdóttir
- Eva Dögg Fjölnisdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Skúli Gautasonframkvæmdastjóri Akureyrarstofu ritaði fundargerð
Samstarfssamningar um menningarmál
Málsnúmer 2014120052Stjórn Akureyrarstofu hefur á undanförnum árum gert samninga við ýmis félagasamtök um menningarstarf. Slíkir samningar eru iðulega gerðir til tveggja - þriggja ára.
Stjórn Akureyrarstofu felur verkefnisstjóra viðburða og menningarmála að móta tillögur að reglum um samstarfssamninga til menningarmála fyrir næsta fund.
Atvinnu- og nýsköpunarhelgin 2012-2015
Málsnúmer 2013040093Atvinnu- og nýsköpunarhelgin verður haldin í Háskólanum 13.- 15. febrúar 2015. Albertína Friðbjörg Elíasdóttir verkefnisstjóri atvinnumála kom á fundinn og sagði frá vinnu við undirbúning helgarinnar.
Stjórn Akureyrarstofu þakkar Albertínu fyrir komuna.
Hjartað í heiðinni
Málsnúmer 2015010144Hulda Sif Hermannsdóttir verkefnisstjóri viðburða og menningarmála kom á fundinn og greindi frá hugmyndum um að koma ljósaverkinu "Hjartanu í heiðinni" upp að nýju.
Stjórn Akureyrarstofu þakkar Huldu Sif fyrir komuna. Stjórnin felur starfsmönnum Akureyrarstofu að leita leiða til að koma verkefninu af stað.
Akureyrarstofa 2015
Málsnúmer 2015010035Lögð var fram fundaáætlun til vors 2015.
Ferðamálastefna
Málsnúmer 2014110220Stjórn Akureyrarstofu þarf að tilnefna tvo fulltrúa í stýrihóp við gerð ferðamálastefnu.
Afgreiðslu málsins frestað til næsta fundar.