Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 967
- Kl. 08:00 - 08:30
- Skrifstofa byggingarfulltrúa
- Fundur nr. 967
Nefndarmenn
- Steinmar Heiðar Rögnvaldssonbyggingarfulltrúi
Starfsmenn
- Arnar Ólafssonverkefnastjóri byggingarmála
- Hjálmar Andrés Jónssonverkefnastjóri byggingarmála
- Rebekka Rut Þórhallsdóttirfulltrúi skipulags- og byggingarmála ritaði fundargerð
Skólastígur 6 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Málsnúmer 2024050289Erindi dagsett 6. maí 2024 þar sem Ágúst Hafsteinsson fyrir hönd Akureyrarbæjar sækir um byggingaráform og byggingarleyfi fyrir breytingum innanhúss í húsi nr. 6 við Skólastíg. Innkomin gögn eftir Ágúst Hafsteinsson.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.
Týsnes 14 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Málsnúmer 2024050449Erindi dagsett 7. maí 2024 þar sem Haraldur S. Árnason f.h. Þríforks ehf. sækir um byggingaráform og byggingarleyfi fyrir tveimur geymsluhúsnæðum á lóð nr. 14 við Týsnes. Innkomin gögn eftir Harald S. Árnason.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.
Álfabyggð 9 - umsókn um bílastæði og/eða úrtak úr kantsteini
Málsnúmer 2024050448Erindi dagsett 7. maí 2024 þar sem Guðbergur Einar Svanbergsson óskar eftir stækkun á bílastæðaúrtaki við hús nr. 9 við Álfabyggð.
Byggingarfulltrúi samþykkir bílastæði með 7 metra úrtaki í kantstein með vísun í vinnureglur um leyfi fyrir bílastæðum og úrtökum í kantstein og þeim skilyrðum sem þar koma fram, enda verði frágangur á lóðamörkum gerður í samráði við nágranna. Umsækjandi greiði kostnað vegna færslu á götugögnum, ef með þarf. Í vinnureglunum er kveðið á um heimild umhverfis- og mannvirkjasviðs til gjaldtöku vegna vinnu við úrtakið.
Hafnarstræti 102 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Málsnúmer 2022061239Erindi dagsett 6. maí 2024 þar sem Ragnar Freyr Guðmundsson f.h. LF1 ehf., sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum í húsi nr. 102 við Hafnarstræti. Innkomin gögn eftir Ragnar Frey Guðmundsson.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.
Álfaholt 5-7 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Málsnúmer 2023050974Erindi dagsett 7. maí 2024 þar sem Magnús Ingvarsson fyrir hönd Davíðs Arnar Benediktssonar sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum á lóð nr. 5-7 við Álfaholt.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.
Eyrarlandsvegur 12 - umsókn um bílastæði og/eða úrtak úr kantsteini
Málsnúmer 2024050322Erindi dagsett 7. maí 2024 þar sem Gísli Guðmann sækir um úrtak úr kantsteini við hús nr. 12 við Eyrarlandsveg. Fyrir liggur samþykki skipulagsráðs.
Byggingarfulltrúi samþykkir bílastæði með 7 metra úrtaki í kantstein með vísun í vinnureglur um leyfi fyrir bílastæðum og úrtökum í kantstein og þeim skilyrðum sem þar koma fram, enda verði frágangur á lóðamörkum gerður í samráði við meðeigendur og nágranna. Umsækjandi greiði kostnað vegna færslu á götugögnum, ef með þarf. Í vinnureglunum er kveðið á um heimild umhverfis- og mannvirkjasviðs til gjaldtöku vegna vinnu við úrtakið.