Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 729
- Kl. 13:00 - 13:30
- Fundarherbergi skipulagssviðs
- Fundur nr. 729
Nefndarmenn
- Leifur Þorsteinssonbyggingarfulltrúi
Starfsmenn
- Stefanía G Sigmundsdóttirfundarritari
Norðurvegur 15 - stöðuleyfi fyrir 20 feta geymslugám
Málsnúmer 2018040039Erindi dagsett 27. júní 2019 þar sem Tómas Jónsson sækir um framlengingu á stöðuleyfi fyrir 20 feta gám á lóð nr. 15 við Norðurveg í Hrísey. Gámurinn er á miðri lóðinni eins fjarri lóðarmörkum og hægt er.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.
Strandgata 37 - umsókn um breytingu verslunarhúsnæðis í íbúð
Málsnúmer 2019060066Tekið fyrir að nýju erindi dagsett 4. júní 2019 þar sem Valþór Brynjarsson fyrir hönd Klettaborga ehf., kt. 581004-3540, sækir um leyfi fyrir breyttri notkun í hluta húss nr. 37 við Strandgötu. Fyrirhugað er að breyta verslunarhúsnæði í íbúð. Innkomin teikning 25. júní 2019 eftir Valþór Brynjarsson.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.
Reynilundur 10 - umsókn um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu
Málsnúmer 2019060077Erindi dagsett 4. júní 2019 þar sem Erlingur Guðmundsson og Kristín Jóhannesdóttir sækja um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu við hús sitt nr. 10 við Reynilund. Fyrirhugað viðbygging er ætluð til að tengja bílskúr við íbúðarhús. Meðfylgjandi er greinargerð hönnunarstjóra og teikning eftir Ævar Guðmundsson.
Fyrir liggur jákvæð umsögn skipulagsráðs.Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.
Gleráreyrar 1 - umsókn um skilti á norður- og suðurhlið
Málsnúmer 2019060096Erindi dagsett 4. júní 2019 þar sem Egill Guðmundsson fyrir hönd EF1 hf., kt. 681113-0960, sækir um leyfi til að auka magn skilta á suður og norðurhlið húss nr. 1 við Gleráreyrar. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Egil Guðmundsson.
Fyrir liggur jákvæð umsögn skipulagsráðs frá 26. júní 2019.Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.
Lerkilundur 18 - fyrirspurn um byggingu þaks milli íbúðarhúss og bílgeymslu
Málsnúmer 2019060197Erindi dagsett 13. júní 2019 þar sem Þórir Guðmundsson fyrir hönd Bergvins Fannars Gunnarssonar leggur inn fyrirspurn varðandi byggingu þaks milli íbúðarhúss og bílgeymslu í Lerkilundi 18. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Ágúst Hafsteinsson.
Fyrir liggur jákvæð umsögn skipulagsráðs frá 26. júní 2019.Byggingarfulltrúi tekur jákvætt í erindið og mun afgreiða umsókn um byggingarleyfi þegar hún berst.
Skarðshlíð 6F - fyrirspurn um lokun svala
Málsnúmer 2019060456Erindi dagsett 9. júní 2019, mótekið 18. júní 2019, þar sem Jón Aðalsteinn Hermannsson sendir inn fyrirspurn um hvort leyfi fengist til að loka svölum íbúðar að Skarðshlíð 6F með glervegg.
Byggingarfulltrúi tekur jákvætt í erindið en sækja þarf um byggingarleyfi með aðaluppdráttum og samþykki meðeigenda í húsinu.
Bjarkarstígur 4 - umsókn um úrtak úr kantsteini
Málsnúmer 2019060591Erindi dagsett 18. júní 2019 þar sem Sigurður S. Sigurðsson og Guðrún K. Blöndal sækja um úrtak úr kantsteini við hús sitt nr. 4 Bjarkarstíg. Meðfylgjandi er mynd.
Byggingarfulltrúi samþykkir bílastæði með 7 m heildarúrtak í kantstein með vísun í vinnureglur um leyfi fyrir bílastæðum og úrtökum í kantstein, enda verði frágangur á lóðamörkum gerður í samráði við nágranna. Umsækjandi greiði kostnað vegna færslu á götugögnum, ef með þarf.
Beykilundur 11, stækkun - umsókn um byggingarleyfi
Málsnúmer 2019040096Erindi dagsett 3. apríl 2019 þar sem Ingólfur Guðmundsson fyrir hönd Hildigunnar Rutar Jónsdóttur spyrst fyrir um hvort leyfi fengist til að byggja viðbyggingu við hús nr. 11 við Beykilund samanber meðfylgjandi tillögu.
Skipulagsráð tók jákvætt í erindið á fundi 24. apríl 2019 og samþykkti að grenndarkynna erindið. Engar athugasemdir bárust á kynningartíma.Byggingarfulltrúi tekur jákvætt í erindið og mun afgreiða umsókn um byggingarleyfi þegar hún berst.
Möðruvallastræti 8 - umsókn um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu
Málsnúmer 2019020258Erindi dagsett 14. febrúar 2019 þar sem Arnór Ingi Hansen og Nína Arnarsdóttir sækja um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu við hús nr. 8 við Möðruvallastræti. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Árna Gunnar Kristjánsson. Innkomnar nýjar teikningar 27. júní 2019.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.
Gudmannshagi 2 - umsókn um byggingarleyfi
Málsnúmer 2019050290Erindi dagsett 4. maí 2019 þar sem Þorleifur Eggertsson fyrir hönd Bjargs íbúðafélags hses., kt. 490916-0670, sækir um byggingarleyfi fyrir fjölbýlishúsi á lóð nr. 2 við Gudmannshaga. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Þorleif Eggertsson. Innkomnar nýjar teikningar 20. júní 2019.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.