Umhverfis- og mannvirkjaráð - 86
- Kl. 08:15 - 10:00
- Fjarfundur
- Fundur nr. 86
Nefndarmenn
- Andri Teitssonformaður
- Unnar Jónsson
- Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir
- Sigurjón Jóhannesson
- Berglind Bergvinsdóttir
- Jana Salóme I. Jósepsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Guðríður Friðriksdóttirsviðsstjóri umhverfis- og mannvirkjasviðs
- Ketill Sigurður Jóelssonverkefnastjóri ritaði fundargerð
Umferðaröryggismál
Málsnúmer 2020020504Jónas Valdimarsson verkefnastjóri tækni og hönnunar kynnti áætlaðar framkvæmdir vegna umferðaröryggismála á Skarðshlíðarhringnum.
Umhverfis- og mannvirkjaráð þakkar kynninguna.
Leikskólinn Klappir við Glerárskóla
Málsnúmer 2018050021Andrea Sif Hilmarsdóttir verkefnastjóri nýframkvæmda kynnti stöðuskýrslu dagsetta 1. október 2020 vegna framkvæmda við byggingu leikskólans.
Glerárholt - kaup
Málsnúmer 2019110468Stöðuskýrsla dagsett 1. október 2020 vegna endurbóta á Glerárholti lögð fyrir ráðið.
Slökkvilið - útboð á stigabíl
Málsnúmer 2019020063Ólafur Stefánsson slökkviliðsstjóri kom og kynnti niðurstöðu útboðsins.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að ganga til samninga við Echelles Riffaud SA og felur umhverfis- og mannvirkjasviði að ganga frá málinu.
Jörvabyggð 14 - sala eignar
Málsnúmer 2020080610Kauptilboð dagsett 24. september 2020 vegna sölu á Jörfabyggð 14 lagt fyrir ráðið.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir kauptilboðið með þeim fyrirvörum sem ræddir voru á fundinum.
Fjárhagsáætlun umhverfis- og mannvirkjasviðs 2021
Málsnúmer 2020080605Fjárhagsáætlun umhverfis- og mannvirkjasviðs, eignfærsluáætlun og gjaldskrár lagðar fyrir ráðið.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir fyrir sitt leyti fyrirlagðar fjárhagsáætlanir með þeim breytingum sem gerðar voru á fundinum.
Umhverfis- og mannvirkjaráð frestar afgreiðslu gjaldskráa umhverfis- og mannvirkjasviðs.
Umhverfis- og mannvirkjaráð frestar afgreiðslu eignfærsluáætlunar umhverfis- og mannvirkjasviðs.