Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 802
- Kl. 13:00 - 14:00
- Fundarherbergi skipulagssviðs
- Fundur nr. 802
Nefndarmenn
- Leifur Þorsteinssonbyggingarfulltrúi
Starfsmenn
- Arnar Ólafssonverkefnastjóri byggingarmála
- Stefanía G Sigmundsdóttirfundarritari
Baldursnes 6A - umsókn um byggingarleyfi fyrir breytingum innanhúss
Málsnúmer 2021010037Erindi dagsett 31. desember 2020 þar sem Baldur Ólafur Svavarsson fyrir hönd Svefns og heilsu ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir breytingum innanhúss í húsi nr. 6A við Baldursnes. Fyrirhugað er að stækka verslunarrými 0102 á kostnað lagerrrýmis og stækka milliloft. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Baldur Ólaf Svavarsson. Innkomnar nýjar teikningar 10. febrúar 2021.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.
Sólvallagata 7 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Málsnúmer 2021011422Erindi dagsett 21. janúar 2021 þar sem Þórir Guðmundsson fyrir hönd Guðmundar Stefánssonar sækir um byggingarleyfi fyrir breytingum á húsi nr. 7 við Sólvallagötu í Hrísey. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Þóri Guðmundsson. Innkomnar nýjar teikningar 10. febrúar 2021.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.
Kjarnagata 57 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Málsnúmer 2021011896Erindi dagsett 28. janúar 2021 þar sem Tryggvi Tryggvason fyrir hönd B.E. Húsbygginga ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir fjölbýlishúsi á lóð nr. 57 við Kjarnagötu. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Tryggva Tryggvason. Innkomnar nýjar teikningar 17. febrúar 2021.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.
Skipagata 4 - umsókn um byggingarleyfi fyrir breytingum á innra skipulagi
Málsnúmer 2021011959Erindi dagsett 29. janúar 2021 þar sem Steinmar Heiðar Rögnvaldsson fyrir hönd Förla ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir breytingum á húsi nr. 4 við Skipagötu. Fyrirhugað er að breyta innra skipulagi á 2.- 4. hæð. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Steinmar Heiðar Rögnvaldsson. Innkomnar nýjar teikningar 17. febrúar 2021.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.
Furuvellir 5 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Málsnúmer 2021020315Erindi dagsett 5. febrúar 2021 þar sem Steinmar Heiðar Rögnvaldsson fyrir hönd Ormsson ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir breytingum á eignarmörkum og veggjum sem því fylgir í húsi nr. 5 við Furuvelli. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Steinmar Heiðar Rögnvaldsson.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.
Árstígur 2 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Málsnúmer 2021020605Erindi dagsett 12. febrúar 2021 þar sem Valþór Brynjarsson fyrir hönd Akureyrarbæjar sækir um byggingarleyfi fyrir breytingum innanhúss í húsi nr. 2 við Árstíg.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.