Fræðslu- og lýðheilsuráð - 69
- Kl. 13:00 - 15:00
- Reiðhöllin við Safírstræti
- Fundur nr. 69
Nefndarmenn
- Heimir Örn Árnasonformaður
- Jón Þorvaldur Heiðarsson
- Inga Dís Sigurðardóttir
- Gunnar Már Gunnarsson
- Jón Hjaltason
- Ásrún Ýr Gestsdóttiráheyrnarfulltrúi
- Rannveig Elíasdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Kristín Jóhannesdóttirsviðsstjóri fræðslu- og lýðheilsusviðs
- Ellert Örn Erlingssonforstöðumaður íþróttamála
- Helga Björg Ingvadóttirfulltrúi ÍBA
- Ida Eyland Jensdóttirforstöðumaður skrifstofu ritaði fundargerð
Fræðslu- og lýðheilsuráð - heimsókn í íþróttamannvirki
Málsnúmer 2022110690Dagbjartur Halldórsson formaður Hestamannafélagsins Léttis tók á móti ráðinu, sýndi aðstöðuna og kynnti starfsemi félagsins.
Áheyrnarfulltrúi: Bjarki Orrason fulltrúi ungmennaráðs.Fræðslu- og lýðheilsuráð þakkar Dagbjarti Halldórssyni formanni Hestamannafélagsins Léttis fyrir góðar móttökur og kynningu á starfinu í Reiðhöllinni.
Ferðakostnaður vegna íþrótta- og tómstunda
Málsnúmer 2025020620Umræður um ferðakostnað barna og unglinga á landsbyggðunum vegna þátttöku í íþrótta- og tómstundastarfi var vísað til fræðslu- og lýðheilsuráðs frá bæjarstjórn og var ráðinu falið að kortleggja stöðuna betur með tilliti til barna og unglinga sem búa í Akureyrarbæ.
Bæjarstjórn Akureyrar lýsti á fundi sínum þungum áhyggjum af ferðakostnaði barna og unglinga á landsbyggðunum tengt íþróttum og tómstundum. Kostnaðurinn hefur aukist mikið á síðastliðnum árum en ferðasjóður ÍSÍ hefur lækkað á sama tíma.
Þóra Pétursdóttir svæðisfulltrúi ÍSÍ/UMFÍ á Norðurlandi eystra, Siguróli Magni Sigurðsson íþróttafulltrúi KA og Linda Guðmundsdóttir íþróttafulltrúi Þórs sátu fundinn undir þessum lið.
Áheyrnarfulltrúi: Bjarki Orrason fulltrúi ungmennaráðs.Fræðslu- og lýðheilsuráð þakkar Þóru Pétursdóttur svæðisfulltrúa ÍSÍ/UMFÍ á Norðurlandi eystra, Siguróla Magna Sigurðssyni íþróttafulltrúa KA og Lindu Guðmundsdóttur íþróttafulltrúa Þórs fyrir komuna og góðar umræður.
Hús- og tækjavörður í sundlaugar Akureyrar
Málsnúmer 2025030301Lögð fram beiðni um ráðningu hús- og tækjavarðar við sundlaugar Akureyrarbæjar.
Gísli Rúnar Gylfason forstöðumaður sundlauga Akureyrar sat fundinn undir þessum lið.
Áheyrnarfulltrúi: Bjarki Orrason fulltrúi ungmennaráðs.Fræðslu- og lýðheilsuráð tekur vel í erindið. Heimilt verður að setja ráðninguna inn í rekstur frá og með sumri 2025 og málinu síðan vísað í fjárhagsáætlunarvinnu ársins 2026.
Fylgiskjöl
Íþróttahöllin - aðstaða í kjallara Íþróttahallarinnar
Málsnúmer 2024120328Lagt fram minnisblað frá forstöðumanni íþróttamála þar sem óskað var eftir fjármagni til að kosta framkvæmdir vegna endurnýjunar gólfefna, lýsingar og hljóðvistar í æfingaaðstöðu í kjallara Íþróttahallarinnar.
Áheyrnarfulltrúi: Bjarki Orrason fulltrúi ungmennaráðs.Fræðslu- og lýðheilsuráð samþykkir framlagða beiðni og vísar henni áfram til bæjarráðs.
Fylgiskjöl
Þórssvæðið - knattspyrnuvöllur
Málsnúmer 2024030763Lögð fram til kynningar stöðuskýrsla dagsett 24. janúar 2025 varðandi framkvæmdir við gervigrasvöll á félagssvæði Þórs.
Áheyrnarfulltrúi: Bjarki Orrason fulltrúi ungmennaráðs.Fylgiskjöl
Félagssvæði KA - stúka, félagsaðstaða og völlur
Málsnúmer 2022110164Lögð fram stöðuskýrsla dagsett í febrúar 2025 varðandi byggingu keppnisvallar, stúku og félagsaðstöðu.
Áheyrnarfulltrúi: Bjarki Orrason fulltrúi ungmennaráðs.Ungmennaráð - Barnvænt sveitarfélag 2024-2027
Málsnúmer 2024080352Lagður fram gátlisti barnvæns hagsmunamats.
Áheyrnarfulltrúi: Bjarki Orrason fulltrúi ungmennaráðs.Fræðslu- og lýðheilsuráð vísar máli 2 til kynningar í ungmennaráði.