Umhverfis- og mannvirkjaráð - 163
- Kl. 08:15 - 11:16
- Fundarherbergi UMSA
- Fundur nr. 163
Nefndarmenn
- Brynja Hlíf Þorsteinsdóttirformaður
- Inga Dís Sigurðardóttir
- Þórhallur Harðarson
- Óskar Ingi Sigurðsson
- Hilda Jana Gísladóttir
- Jón Hjaltasonáheyrnarfulltrúi
- Ólafur Kjartanssonáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Guðríður Friðriksdóttirsviðsstjóri umhverfis- og mannvirkjasviðs
- Ketill Sigurður Jóelssonverkefnastjóri ritaði fundargerð
Snjómokstur - dómsmál
Málsnúmer 2021101632Kynning á niðurstöðu dómsmáls varðandi snjómokstur á Akureyri.
Inga Þöll Þórgnýsdóttir bæjarlögmaður sat fundinn undir þessum lið.Fylgiskjöl
Umferðaröryggismál - Austursíða
Málsnúmer 2024021574Lagðar fram teikningar af fyrirhuguðum framkvæmdum í Austursíðu.
Jónas Valdimarsson verkefnastjóri hönnunar sat fundinn undir þessum lið.Umhverfis- og mannvirkjaráð leggur til að hámarkshraði í Austursíðu verði endurskoðaður þar sem íbúar í hverfinu hafa áhyggjur af umferðaröryggi á svæðinu.
Hilda Jana Gísladóttir S-lista óskar bókað:
Þann 15. mars árið 2022 hóf ég umræðu um umferðaröryggimál á Akureyri og samþykkti bæjarstjórn þá tillögu mína um að hefja undirbúning að gerð umferðaröryggisáætlunar. Því miður er sú vinna enn ekki hafin og því ekki til nein umferðaröryggisáætlun fyrir sveitarfélagið. Á íbúafundi í Síðuhverfi í liðnum mánuði lögðu íbúar mikla áherslu á bætt umferðaröryggi í Austursíðu og eru þessar tvær gangbrautir, sem hér eru til umræðu sannarlega til bóta. Hins vegar er ljóst að ef mæta á ákalli íbúa þá þarf einnig að horfa til fleiri úrræða t.d. gönguþveranir við Bugðusíðu og Fögrusíðu, lækka umferðarhraða og bæta við hraðahindrunum. Ef ljóst er að framtíðarlausnir í umferðaröryggismálum muni taka einhvern tíma í framkvæmd þá er mikilvægt að horfa til bráðabirgðalausna, ekki síst á svæðum þar sem mikil uppbygging á sér stað á skömmum tíma líkt og raunin hefur verið við Austursíðu.Fylgiskjöl
Úrgangsmál - fyrirkomulag og útboð
Málsnúmer 2022110167Lagt fram minnisblað dagsett 31. maí 2024 varðandi stöðuna á innleiðingu nýs sorphirðukerfis.
Jón Birgir Gunnlaugsson verkefnastjóri umhverfismála og Ísak Már Jóhannesson verkefnastjóri úrgangs- og loftlagsmála sátu fundinn undir þessum lið.European City Facility - styrkur til þróunar á fjárfestingum í orkuskiptum
Málsnúmer 2024051764Kynntur styrkur sem Akureyrarbær fékk frá European City Facility til þróunar á fjárfestingum í orkuskiptum.
Jón Birgir Gunnlaugsson verkefnastjóri umhverfismála og Ísak Már Jóhannesson verkefnastjóri úrgangs- og loftlagsmála sátu fundinn undir þessum lið.Umhverfis- og mannvirkjaráð fagnar því að Akureyrarbær hafi fengið umræddan styrk til þróunar á fjárfestingum í orkuskiptum, í samvinnu við Vistorku, Eim og Líforkuver ehf.
Ferðamálasjóður - úthlutun styrkja
Málsnúmer 2024051830Lagt fram minnisblað dagsett 31. maí 2024 varðandi þrjár styrkumsóknir sem Akureyrarbær sendi inn til Ferðamálasjóðs varðandi verkefni í Hrísey, í Hlíðarfjalli og á Glerárdal. Umsóknum um styrk til verkefna á Glerárdal og í Hlíðarfjalli var hafnað en umsókn um styrk til stígagerðar í Hrísey var samþykkt.
Jón Birgir Gunnlaugsson verkefnastjóri umhverfismála sat fundinn undir þessum lið.Stígar 2024
Málsnúmer 2023120853Kynning á stígagerð og viðhaldi sumarið 2024.
Jón Birgir Gunnlaugsson verkefnastjóri umhverfismála sat fundinn undir þessum lið.Fylgiskjöl
Útplöntun í bæjarlandinu
Málsnúmer 2024051762Lagt fram minnisblað dagsett 31. maí 2024 varðandi útplöntun í bæjarlandinu.
Jón Birgir Gunnlaugsson verkefnastjóri umhverfismála sat fundinn undir þessum lið.Fylgiskjöl