Umhverfis- og mannvirkjaráð - 98
- Kl. 08:15 - 11:15
- Fjarfundur
- Fundur nr. 98
Nefndarmenn
- Andri Teitssonformaður
- Unnar Jónsson
- Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir
- Sigurjón Jóhannesson
- Berglind Bergvinsdóttir
- Jana Salóme I. Jósepsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Guðríður Friðriksdóttirsviðsstjóri umhverfis- og mannvirkjasviðs
- Ketill Sigurður Jóelssonverkefnastjóri ritaði fundargerð
Holtahverfi - gatnagerð og lagnir
Málsnúmer 2021023068Minnisblað dagsett 13. apríl 2021 varðandi framkvæmdir í Holtahverfi lagt fram.
Rut Jónsdóttir forstöðumaður umhverfis- og sorpdeildar og Tómas Björn Hauksson forstöðumaður nýframkvæmda sátu fundinn undir þessum lið.Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að framkvæmdum við Holtahverfi verði flýtt til þess að fyrstu lóðir verði tilbúnar í febrúar 2022. Tilfærslu fjármagns á milli ára vegna flýtingarinnar er vísað til bæjarráðs.
Bílastæðasjóður - gjaldtaka
Málsnúmer 2019050628Lögð fram minnisblöð dagsett 9. apríl 2021 varðandi gjaldtöku á bílastæðum á Akureyri.
Rut Jónsdóttir forstöðumaður umhverfis- og sorpdeildar og Tómas Björn Hauksson forstöðumaður nýframkvæmda sátu fundinn undir þessum lið.Nýframkvæmdir umhverfismála 2021
Málsnúmer 2021040672Lögð fram minnisblöð dagsett 15. apríl 2021 varðandi nýframkvæmdir í umhverfismálum 2021.
Rut Jónsdóttir forstöðumaður umhverfis- og sorpdeildar sat fundinn undir þessum lið.Samkomulag við Meindýravarnir Eyjafjarðar
Málsnúmer 2021040669Lögð fram drög að samningi dagsettum 15. apríl 2021 við Meindýravarnir Eyjafjarðar varðandi meindýravarnir á Akureyri.
Rut Jónsdóttir forstöðumaður umhverfis- og sorpdeildar sat fundinn undir þessum lið.Umhverfis- mannvirkjaráð samþykkir drögin og felur forstöðumanni umhverfis- og sorpdeildar að vinna málið áfram.
Ráðhúsið á Akureyri
Málsnúmer 2021011696Lögð fram niðurstaða forvalsnefndar dagsett 13. apríl 2021 varðandi forval fyrir boðskeppni vegna viðbyggingar við Ráðhúsið á Akureyri, endurbætur á hluta núverandi húss og endurhönnun á lóð og aðkomu Ráðhússins.
Dóra Sif Sigtryggsdóttir forstöðumaður rekstrardeildar sat fundinn undir þessum lið.Lundarskóli - húsgögn
Málsnúmer 2021040663Umsögn og niðurstaða vegna útboðs á húsgagnakaupum fyrir Lundarskóla dagsett 14. apríl 2021 lögð fyrir ráðið.
Georg Fannar Haraldsson verkefnastjóri á rekstrardeild sat fundinn undir þessum lið.Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að ganga til samninga við Bústoð um kaup á húsgögnum fyrir Lundarskóla.
Akstur fyrir ferliþjónustu SVA - verðkönnun
Málsnúmer 2021031546Lagt fram minnisblað dagsett 15. apríl 2021 varðandi niðurstöðu útboðs um akstur fyrir ferliþjónustu um helgar og á álagstímum.
Hrafn Svavarsson forstöðumaður umhverfismiðstöðvar sat fundin undir þessum lið.Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að gengið til samninga við 3 bjóðendur í hverjum lið (a, b og d) en hafna öllum tilboðum í lið c vegna mistaka og verður hann boðinn út aftur síðar.
Talningakerfi í strætisvagna SVA
Málsnúmer 2021040823Lagt fram minnisblað dagsett 15. apríl 2021 varðandi kaup á talningakerfi í strætisvagna SVA.
Hrafn Svavarsson forstöðumaður umhverfismiðstöðvar sat fundin undir þessum lið.Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir kaupin og rúmast þau innan eignfærsluáætlunar.
Startpallar í Sundlaug Akureyrar
Málsnúmer 2021031031Lögð fram beiðni frá frístundaráði vegna Sundlaugar Akureyrar.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir beiðni frá frístundaráði vegna Sundlaugar Akureyrar að fjárhæð kr. 7 milljónir.