Stjórn Akureyrarstofu - 311
- Kl. 14:30 - 16:30
- Fjarfundur
- Fundur nr. 311
Nefndarmenn
- Hilda Jana Gísladóttirformaður
- Anna Fanney Stefánsdóttir
- Sigfús Arnar Karlsson
- Berglind Ósk Guðmundsdóttir
- Karl Liljendal Hólmgeirssonáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Kristinn Jakob Reimarssonsviðsstjóri samfélagssviðs ritaði fundargerð
- Þórgnýr Dýrfjörðforstöðumaður Akureyrarstofu
Starfs- og fjárhagsáætlun stjórnar Akureyrarstofu 2021
Málsnúmer 2020060900Starfsáætlun stjórnar Akureyrarstofu lögð fram til samþykktar.
Sjórn Akureyrarstofu samþykkir starfsáætlun 2021.
Starfsáætlunin er unnin í anda samstarfssáttmála bæjarstjórnar þar sem meðal annars er lögð áhersla á að fækka ólögbundnum verkefnum og að rekstur Akureyrarbæjar verði fjárhagslega sjálfbær á næstu fimm árum.Fylgiskjöl
Menningarsjóður Akureyrar - breyting á verklagsreglum
Málsnúmer 2015110169Drög að breytingum á verklagsreglum menningarsjóðs lagðar fram til kynningar.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir breytingar á verklagsreglum menningarsjóðs og samþykkir að sérstök áhersla verði á fjölbreytileika og hinsegin samfélagið við úthlutun styrkja úr sjóðnum á árinu 2021.
Barnamenningarhátíð á Akureyri
Málsnúmer 2019030063Óskað er eftir tilnefningu tveggja fulltrúa í faghóp barnamenningarhátíðar sbr. 3. grein verklagsreglna um stuðning Akureyrarbæjar við viðburði á barnamenningarhátíð á Akureyri.
Stjórn Akureyrastofu samþykkir að tilnefna Heimi Ingimarsson og Sigfús Arnar Karlsson sem fulltrúa í faghóp barnamenningarhátíðar.
Upplýsingastefna Akureyrarbæjar
Málsnúmer 2015110167Umræða um aðgerðir upplýsingastefnu Akureyrarbæjar.
Samningur við Gilfélagið um leigu á Deiglunni
Málsnúmer 2020020492Samningur við Gilfélagið um leigu á Deiglunni lagður fram til samþykktar.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir samninginn.
List á hringtorgum
Málsnúmer 2021010011Erindi dagsett 4. janúar 2021 frá Guðmundi R. Lúðvíkssyni myndlistarmanni þar sem kynnt er hugmynd um að setja listaverk á hringtorg í bænum.
Stjórn Akureyrarstofu getur ekki orðið við erindinu.
Fylgiskjöl
Hollvinafélag Húna II - samningur 2021
Málsnúmer 2020120340Samningur við Hollvinafélag Húna II fyrir árið 2021 lagður fram til samþykktar.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir samninginn fyrir sitt leyti.
Súlur Vertical - stuðningur við fjallahlaupið
Málsnúmer 2021010344Rætt um hugsanlega aðkomu Akureyrarbæjar að fjallahlaupinu Súlur Vertical.
Minjasafnið á Akureyri - fundargerðir stjórnar
Málsnúmer 2019030227Fundargerðir stjórnar Minjasafnsins nr. 16, 17 og 18 lagðar fram til kynningar.
Fylgiskjöl
Samfélagssvið - starfsmannamál
Málsnúmer 2018110172Lögð fram til kynningar samantekt á yfirvinnu í hlutfalli við dagvinnu á kostnaðarstöðvum sem heyra undir stjórn Akureyrarstofu.