Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 728
- Kl. 13:15 - 15:00
- Fundarherbergi skipulagssviðs
- Fundur nr. 728
Nefndarmenn
- Leifur Þorsteinssonbyggingarfulltrúi
- Björn Jóhannsson
Rangárvellir 2 - hús nr. 8 - umsókn um byggingarleyfi
Málsnúmer 2016120047Erindi dagsett 19. júní 2019 þar sem Fanney Hauksdóttir fyrir hönd Norðurorku ehf., kt. 550978-0169, sækir um breytingar á áður samþykktum uppdráttum af húsi nr. 8 á lóðinni nr. 2 við Rangárvelli. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Fanneyju Hauksdóttur.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.
Þingvallastræti 40 - umsókn um viðbyggingu
Málsnúmer 2019050115Erindi dagsett 26. apríl 2019 þar sem Kári Magnússon fyrir hönd Jóns Sigurðar Þorsteinssonar sækir um byggingingarleyfi fyrir viðbyggingu við Þingvallastræti 40. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Kára Magnússon. Innkomnar nýjar teikningar 12. júní 2019.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.
Ránargata 2A og 2B - umsókn um byggingarleyfi fyrir breytingum
Málsnúmer 2019060141Erindi dagsett 11. júní 2019 þar sem Berglind Ósk Óðinsdóttir og Tryggvi Harðarson sækja um byggingarleyfi fyrir breytingum á húsi nr. 2A og 2B við Ránargötu. Breytingarnar varða glugga og útihurð ásamt breytingu veggja á 1. hæð. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Kára Magnússon.
Byggingarfulltrúi hafnar erindinu vegna ófullnægjandi gagna.
Möðruvallastræti 2 - umsókn um bílastæði og úrtak í kantstein
Málsnúmer 2019060165Erindi dagsett 12. júní 2019 þar sem Helgi Kristínarson Gestsson sækir um úrtöku úr kantsteini og bílastæði við hús nr. 2 við Möðruvallastræti. Meðfylgjandi er skýringarmynd.
Byggingarfulltrúi samþykkir 5 metra úrtak í kantstein og bílastæði innan lóðar með vísun í vinnureglur um leyfi fyrir bílastæðum og úrtökum í kantstein, enda verði frágangur á lóðamörkum gerður í samráði við nágranna. Umsækjandi greiði kostnað vegna færslu á götugögnum, ef með þarf.
Glerárgata 24 - umsókn um byggingarleyfi fyrir breytingum á 1.hæð
Málsnúmer 2019060219Erindi dagsett 13. júní 2019 þar sem Þorvarður Lárus Björnsson fyrir hönd Vátryggingafélags Íslands hf., kt. 690689-2009, og LF ehf., kt. 691206-4750, sækir um byggingarleyfi fyrir breytingum á 1. hæð hússins nr. 24 við Glerárgötu. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Þorvarð Lárus Björnsson.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.
Langholt 15 - umsókn um stækkun bílastæðis og úrtak í kantstein
Málsnúmer 2019060288Erindi dagsett 14. júní 2019 þar sem Sölvi Lárusson sækir um stækkun á bílastæði og úrtöku úr kantsteini við hús sitt nr. 15 við Langholt skv. meðfylgjandi mynd.
Byggingarfulltrúi samþykkir stækkun á bílastæði og 7 m heildarúrtak í kantstein með vísun í vinnureglur um leyfi fyrir bílastæðum og úrtökum í kantstein, enda verði frágangur á lóðamörkum gerður í samráði við nágranna. Umsækjandi greiði kostnað vegna færslu á götugögnum, ef með þarf.
Sólvellir 6 - umsókn um breikkun bílastæðis
Málsnúmer 2019060289Erindi dagsett 14. júní 2019 þar sem Hreiðar B. Hreiðarsson fyrir hönd Oldfarm ehf., kt. 550416-0930, sækir um breikkun bílastæðis í 6 m við hús nr. 6 við Sólvelli skv. meðfylgjandi mynd.
Byggingarfulltrúi samþykkir stækkun á bílastæði og 7 m heildarúrtak í kantstein með vísun í vinnureglur um leyfi fyrir bílastæðum og úrtökum í kantstein, enda verði frágangur á lóðamörkum gerður í samráði við nágranna. Umsækjandi greiði kostnað vegna færslu á götugögnum, ef með þarf.
Álfabyggð 3 - umsókn um niðurfellingu mhl 03 úr fasteignaskrá
Málsnúmer BN990236Erindi dagsett 6. júní 2019, móttekið 13. júní 2019, frá G. Bryndísi Björnsdóttur og Halldóri Péturssyni þar sem þau óska eftir að felldur verði úr fasteignaskrá matshluti 03 sem er garðskúr sem nú stendur á lóðinni Álfabyggð 3.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.
Daggarlundur 13 - umsókn um byggingarleyfi
Málsnúmer 2014090242Erindi dagsett 13. júní 2019 þar sem Valþór Brynjarsson fyrir hönd Ingva Þórs Björnssonar og Jónínu Freydísar Jóhannesdóttur sækja um byggingarleyfi fyrir breytingum innanhúss í húsi nr. 13 við Daggarlund. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Loga Má Einarsson.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.
Kjarnaskógur - umsókn um byggingarleyfi fyrir þremur gróðurhúsum
Málsnúmer 2019060150Erindi dagsett 11. júní 2019 þar sem Kári Magnússon fyrir hönd Sólskóga ehf., kt. 511296-2189, sækir um byggingarleyfi fyrir þremur gróðurhúsum í Kjarnaskógi L211523. Meðfylgjandi er gátlisti og teikningar eftir Kára Magnússon.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.