Bæjarstjórn - 3397
- Kl. 16:00 - 20:00
- Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 3397
Nefndarmenn
- Matthías Rögnvaldssonforseti bæjarstjórnar
- Ingibjörg Ólöf Isaksen
- Sóley Björk Stefánsdóttir
- Dagbjört Elín Pálsdóttir
- Guðmundur Baldvin Guðmundsson
- Sigríður Huld Jónsdóttir
- Silja Dögg Baldursdóttir
- Eva Hrund Einarsdóttir
- Gunnar Gíslason
- Jón Þorvaldur Heiðarsson
- Njáll Trausti Friðbertsson
Starfsmenn
- Eiríkur Björn Björgvinssonbæjarstjóri
- Dagný Magnea Harðardóttirfundarritari
Bæjarstjórn Akureyrar - breytingar í nefndum 2014-2018
Málsnúmer 2014060234Lögð fram tillaga V-lista um tímabundna breytingu á skipan varaáheyrnarfulltrúa í bæjarráði:
Hildur Friðriksdóttir tekur tímabundið sæti varaáheyrnarfulltrúa í bæjarráði frá 1. september 2016 til og með 15. janúar 2017 af Edward H. Huijbens.
Lögð fram tillaga D-lista um breytingu á skipan varafulltrúa í yfirkjörstjórn Akureyrarbæjar:
Anna Rósa Magnúsdóttir tekur sæti varafulltrúa í yfirkjörstjórn Akureyrarbæjar í stað Kristjáns H. Kristjánssonar.
Einnig lögð fram tillaga D-lista um breytingu á skipan aðal- og varafulltrúa í heilbrigðisnefnd Norðurlands eystra:
Hjördís Stefánsdóttir tekur sæti aðalfulltrúa í stað Svanhildar Dóru Björgvinsdóttur og Lára Halldóra Eiríksdóttir tekur sæti varafulltrúa í stað Hjördísar StefánsdótturBæjarstjórn samþykkir framlagðar tillögur með 11 samhljóða atkvæðum.
Hótel Kjarnalundur lnr. 150012 - umsókn um deiliskipulagsbreytingu
Málsnúmer 20160601483. liður í fundargerð skipulagsnefndar dagsett 14. september 2016:
Erindi dagsett 23. júní 2016 þar sem Haraldur S. Árnason f.h. Kjarnalundar ehf, kt. 541114-0330, sækir um breytingu á deiliskipulagi fyrir Hótel Kjarnalund, Kjarnalundur lnr. 150012. Skipulagsnefnd heimilaði umsækjanda þann 10. ágúst 2016 að leggja fram tillögu að breytingu á deiliskipulagi.
Tillagan er dagsett 7. september 2016 og unnin af Ómari Ívarssyni hjá Landslagi.
Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að tillagan verði auglýst skv. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar með 11 samhljóða atkvæðum.
Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar 2016 - viðauki
Málsnúmer 20150401961. liður í fundargerð bæjarráðs dagsett 15. september 2016:
Lagður fram viðauki nr. 1.
Jón Bragi Gunnarsson hagsýslustjóri og Dan Jens Brynjarsson fjármálastjóri sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.
Bæjarráð samþykkir framlagðan viðauka og vísar honum til staðfestingar í bæjarstjórn.Bæjarstjórn samþykkir framlagðan viðauka með 10 samhljóða atkvæðum.
Sóley Björk Stefánsdóttir V-lista sat hjá við afgreiðslu.Íbúalýðræði og gagnsæ stjórnsýsla
Málsnúmer 2015020002Umræður um tillögur vinnuhóps um íbúalýðræði og gagnsæja stjórnsýslu.
Bæjarfulltrúi Sigríður Huld Jónsdóttir vék af fundi kl. 19:15.
Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri vék af fundi kl. 19:30.Vinabæir og erlend samskipti
Málsnúmer 2014090064Umræða um niðurstöðu vinnuhóps um vinabæi og erlend samskipti.