Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 893
- Kl. 14:00 - 14:25
- Skrifstofa byggingarfulltrúa
- Fundur nr. 893
Nefndarmenn
- Steinmar Heiðar Rögnvaldssonbyggingarfulltrúi
Starfsmenn
- Arnar Ólafssonverkefnastjóri byggingarmála
- Þórunn Vilmarsdóttirfundarritari
Brekkugata 29 - umsókn um byggingaráform, breytt notkun og svalir
Málsnúmer 2022111225Erindi dagsett 23. nóvember 2022 þar sem Sigurður Ingi Kristófersson sækir um byggingarleyfi fyrir svölum á hús nr. 29 við Brekkugötu og breytta notkun á rýmum. Innkomnar nýjar teikningar 6. desember 2022.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.
Hrafnagilsstræti 2 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Málsnúmer 2022110605Erindi dagsett 14. nóvember 2022 þar sem Ragnar Freyr Guðmundsson fyrir hönd Kaþólsku kirkjunnar á Íslandi sækir um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu við hús á lóð nr. 2 við Hrafnagilsstræti. Innkomnar nýjar teikningar 7. desember 2022.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.
Hulduholt 13-19 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Málsnúmer 2022051558Erindi dagsett 6. desember 2022 þar sem Fanney Hauksdóttir fyrir hönd Kötlu ehf. byggingarfélags sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum fyrir fjögurra íbúða raðhúsi á einni hæð á lóð nr. 13 við Hulduholt. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Fanneyju Hauksdóttur.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.