Íþróttaráð - 202
- Kl. 13:00 - 14:30
- Greifinn
- Fundur nr. 202
Nefndarmenn
- Ingibjörg Ólöf Isaksenformaður
- Árni Óðinsson
- Birna Baldursdóttir
- Þórunn Sif Harðardóttir
- Jónas Björgvin Sigurbergsson
- Guðrún Þórsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Ellert Örn Erlingssonframkvæmdastjóri samfélags- og mannréttindadeildar ritaði fundargerð
- Aðalsteinn Sigurgeirssonforstöðumaður Íþróttahallarinnar, íþróttahúss Síðuskóla, Íþróttamiðstöðvar Giljaskóla, Íþróttamiðstöðvar Glerárskóla
- Elín Heiðdís Gísladóttirforstöðumaður Sundlaugar Akureyrar
- Guðmundur Karl Jónssonforstöðurmaður Hlíðarfjalls
Skautafélag Akureyrar - ósk um styrk vegna búningakaupa kvennaliðs SA
Málsnúmer 2016120019Erindi dagsett 30. nóvember 2016 frá Skautafélagi Akureyrar þar sem óskað er eftir styrk vegna treyjukaupa meistaraflokks kvenna.
Íþróttaráð getur ekki orðið við erindinu.
Íshokkísamband Íslands - styrkbeiðni vegna HM kvenna á Akureyri 2017.
Málsnúmer 2016120020Birna Baldursdóttir L-lista mætti til fundarins kl. 13:28 eftir afgreiðslu fyrsta dagskrárliðar. <br />
Erindi dagsett 30. nóvember 2016 frá Konráði Gylfasyni framkvæmdastjóra Íshokkísambands Íslands þar sem óskað er eftir styrkjum frá Akureyrarbæ vegna heimsmeistaramóts kvenna sem verður á Akureyri 27. febrúar til 5. mars 2017.
Íþróttaráð samþykkir óskir Íshokkísambands Íslands um aðgang að sundlaugum Akureyrar og Hlíðarfjalli.
Íþróttaráð felur framkvæmdastjóra í samstarfi við Skautafélag Akureyrar að skoða ósk um kostnað við leigu, breytingar á húsnæði og rekstur skautahallarinnar á meðan á mótinu stendur.
Íþróttaráð vísar öðrum óskum um aðkomu bæjarins að mótinu til bæjarráðs.
Aðalskipulag Akureyrar 2018-2030
Málsnúmer 2015110092Skipulagsnefnd hefur óskað eftir umsögn um tillögur skipulagsstjóra að Aðalskipulagi Akureyrar 2018-2030. Seinni umræða.
Íþróttaráð felur framkvæmdastjóra að koma athugasemdum ráðsins á framfæri til skipulagsstjóra.
Íþróttaráð 2016 - ýmis og önnur mál
Málsnúmer 2016020029Síðasti fundur íþróttaráðs sem sameinast samfélags- og mannréttindaráði í frístundaráð á nýju ári.
Íþróttaráð þakkar farsælt og gott samstarf innan ráðsins sem og við starfsmenn deildarinnar.
Íþróttaráð óskar nýju ráði velfarnaðar og öllum Akureyringum gleðilegrar hátíðar og farsældar á komandi ári.