Skólanefnd - 4
- Kl. 13:30 - 15:10
- Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
- Fundur nr. 4
Nefndarmenn
- Logi Már Einarssonformaður
- Dagný Þóra Baldursdóttir
- Siguróli Magni Sigurðsson
- Hanna Dögg Maronsdóttir
- Preben Jón Pétursson
- Anna María Hjálmarsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Soffía Vagnsdóttirfræðslustjóri ritaði fundargerð
- Hrafnhildur G Sigurðardóttirleikskólafulltrúi
- Árni Konráð Bjarnasonrekstrarstjóri
Aðgerðarhópur um framtíðarrekstur Akureyrarbæjar
Málsnúmer 2016030022Umræður um framtíðarrekstur í málaflokki fræðslumála.
Rekstur fræðslumála 2016
Málsnúmer 2016030017Árni Konráð Bjarnason rekstrarstjóri fór yfir stöðu rekstrar fræðslumála fyrir janúarmánuð.
Afsal kennsluafsláttar
Málsnúmer 2016030033Samstarfsnefnd Félags grunnskólakennara og Sambands íslenskra sveitarfélaga hefur komist að þeirri niðurstöðu að opna nýjan glugga sem heimilar kennurum að afsala sér kennsluafslætti.
Lagt fram til kynningar.Uppsögn skólastjóra
Málsnúmer 2015110052Bréf dagsett 1. mars 2016 frá Ágústi Jakobssyni skólastjóra Naustaskóla þar sem hann segir starfi sínu sem skólastjóri lausu.
Skólanefnd þakkar Ágústi Jakobssyni kærlega fyrir vel unnin störf í þágu skólastarfs á Akureyri, uppbyggingar Naustaskóla og óskar honum velfarnaðar á nýjum vettvangi skólasamfélagins.
Bréf frá börnum í Hrísey febrúar 2016
Málsnúmer 2016030032Erindi til bæjarstjóra frá börnum í Hrísey dagsett 7. janúar 2016 þar sem þau óska eftir að fá hjólabrettabraut í eyjunni.
Skólanefnd þakkar börnum í Hrísey fyrir skemmtilegt bréf og góða hugmynd. Hugmyndinni verður vísað til aðgerðarhóps um rekstur sem nú er að störfum.