Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar - 254
05.12.2014
Hlusta
- Kl. 08:15 - 10:00
- Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 254
Nefndarmenn
- Dagur Fannar Dagssonformaður
- Eiríkur Jónsson
- Ingibjörg Ólöf Isaksen
- Njáll Trausti Friðbertsson
- Þorsteinn Hlynur Jónsson
- Hermann Ingi Arasonáheyrnarfulltrúi
- Óskar Gísli Sveinssonverkefnastjóri viðhalds
- Dóra Sif Sigtryggsdóttirfundarritari
Eiríkur Jónsson S-lista mætti í forföllum Helenu Þuríðar Karlsdóttur.[line]Njáll Trausti Friðbertsson D-lista mætti á fundinn kl. 08:30.
Samstarfsnefnd um ferlimál fatlaðra - tilnefning fulltrúa kjörtímabilið 2014-2018
Málsnúmer 2014090020Tilnefning fulltrúa stjórnar Fasteigna Akureyrarbæjar í samstarfsnefnd um ferlimál fatlaðra kjörtímabilið 2014-2018.
Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar tilnefnir eftirtalda aðila sem fulltrúa sína í nefndinni: aðalmaður Ingibjörg Ólöf Ísaksen B-lista og varamaður Njáll Trausti Friðbertsson D-lista.
Þórunnarstræti 99 - aðstaða fyrir Skátafélagið Klakk í kjallara
Málsnúmer 2014080046Lagður fram til samþykktar húsaleigusamningur við Skátafélagið Klakk dagsettur 1. desember 2014 um aðstöðu fyrir félagið í kjallara Þórunnarstrætis 99.
Afgreiðslu frestað.
Skjaldarvík - húsaleigusamningur við Concept ehf
Málsnúmer 2004010122Lagður fram viðauki dagsettur 5. desember 2014 við húsaleigusamning sem dagsettur er 26. janúar 2010.
Afgreiðslu frestað til næsta fundar.