Velferðarráð - 1310
- Kl. 14:00 - 17:00
- Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
- Fundur nr. 1310
Nefndarmenn
- Heimir Haraldssonformaður
- Hermann Ingi Arason
- Lára Halldóra Eiríksdóttir
- Sigrún Elva Briemáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Guðrún Ólafía Sigurðardóttirsviðsstjóri fjölskyldusviðs
- Halldór Sigurður Guðmundssonframkvæmdastjóri ÖA
- Guðrún Guðmundsdóttirstarfandi sviðsstjóri búsetusviðs
- Kristín Birna Kristjánsdóttirfundarritari
Í skugga valdsins #metoo - kynning
Málsnúmer 2019090491Umfjöllun um endurskoðaðar siðareglur kjörinna fulltrúa Akureyrarbæjar, samskiptasáttmála kjörinna fulltrúa Akureyrarbæjar og leiðbeiningar um skráningu kjörinna fulltrúa hjá Akureyrarbæ á fjárhagslegum hagsmunum og trúnaðarstörfum sem samþykktar voru í bæjarstjórn 17. september 2019. Einnig voru kynntir verkferlar mála sem upp kunna að koma.
Að umfjöllun lokinni undirrituðu nefndarmenn yfirlýsingu um siðareglur og samskiptasáttamála.
Eva Hrund Einarsdóttir bæjarfulltrúi og Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri stjórnsýslusviðs sátu fundinn undir þessum lið.Fylgiskjöl
- Leiðbeiningar um hagsmunaskráningu kjörinna fulltrúa samþykktar í bæjarstjórn 17.09.19.pdf
- Samskiptasáttmáli kjörinna fulltrúa samþykktur í bæjarstjórn 17.09.19.pdf
- Siðareglur kjörinna fulltrúa Akureyrarbæjar samþykktar í bæjarstjórn 17.09.19.pdf
- Ábyrgðarmörk_bæjarfulltrúar.pdf
- Ábyrgðarmörk_starfsfólk.pdf
- Áreiti.pdf
- óviðeigandi framkoma.pdf
- Skyldur.pdf
- Yfirlýsing kjörinna fulltrúa - form.docx
Fjárhagserindi 2019 - áfrýjanir
Málsnúmer 2019050634Anna Marit Níelsdóttir forstöðumaður félagsþjónustu fjölskyldusviðs kynnti tvær áfrýjanir í fjárhagsaðstoð.
Halldóra Hauksdóttir lögfræðingur á fjölskyldusviði sat fundinn undir þessum lið.Fjárhagserindi og afgreiðsla þeirra eru færð í trúnaðarbók velferðarráðs.
Frumvarp til laga um barnaverndarlög (refsing við tálmun eða takmörkun á umgengni), 123. mál 2019
Málsnúmer 2019100320Lögð fram drög að umsögn vegna frumvarps til breytinga á barnaverndarlögum.
Halldóra Hauksdóttir lögfræðingur á fjölskyldusviði og Anna Marit Níelsdóttir forstöðumaður félagsþjónustu sátu fundinn undir þessum lið.Velferðarráð samþykkir umsögnina og felur starfsmönnum að koma henni til nefndasviðs Alþingis.
Fylgiskjöl
Velferðarráð - rekstraryfirlit 2019
Málsnúmer 2019030355Lagt fram til kynningar rekstraryfirlit fyrstu 9 mánuði ársins frá búsetusviði, fjölskyldusviði og Öldrunarheimilum Akureyrar.
Þóra Sif Sigurðardóttir hjúkrunarforstjóri ÖA og Lúðvík Freyr Sæmundsson rekstrarstjóri ÖA sátu fundinn undir þessum lið.Öldrunarheimili Akureyrarbæjar - ársskýrslur og rekstraryfirlit
Málsnúmer 2018030314Lúðvík Freyr Sæmundsson rekstrarstjóri ÖA lagði fram samantekt um rekstur ÖA fyrir allt árið 2018.
Um er að ræða yfirlitsmyndir og skýringar um þróun nokkurra þátta í rekstri ÖA, líkt og áður hefur verið gefið út og verður birt á heimasíðu ÖA.
Þóra Sif Sigurðardóttir hjúkrunarforstjóri ÖA sat fundinn undir þessum lið.Fylgiskjöl