Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 860
- Kl. 13:00 - 15:00
- Skrifstofa byggingarfulltrúa
- Fundur nr. 860
Nefndarmenn
- Steinmar Heiðar Rögnvaldssonbyggingarfulltrúi
Starfsmenn
- Arnar Ólafssonverkefnastjóri byggingarmála
Týsnes 2 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Málsnúmer 2022031211Erindi dagsett 27. mars 2022 þar sem Haraldur Sigmar Árnason fyrir hönd Þríforks ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir tveimur byggingum á lóð nr. 2 við Týsnes. Byggingarnar eru geymsluhúsnæði merktar mhl.01 og mhl.02. Meðfylgjandi eru teikningar Harald Sigmar Árnason.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.
Týsnes 8 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Málsnúmer 2022031359Erindi dagsett 30. mars 2022 þar sem Rögnvaldur Harðarson fyrir hönd Byggingarfélagsins Stafnsins sækir um byggingarleyfi fyrir húsi á lóð nr. 8 við Týsnes. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Rögnvald Harðarson.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.
Kotárgerði 28 - umsókn um byggingarleyfi fyrir breytingum
Málsnúmer 2022041940Erindi dagsett 5. apríl 2022 þar sem Valbjörn Ægir Vilhjálmsson fyrir hönd Björns Davíðssonar sækir um byggingarleyfi fyrir breytingum í húsi nr. 28 við Kotárgerði. Fyrirhugað er að steypa nýjar svalir og tröppur. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Valbjörn Ægi Vilhjálmsson.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.
Ystibær-Miðbær 2 - umsókn um byggingarleyfi fyrir gestahúsi
Málsnúmer 2022031012Erindi dagsett 23. mars 2022 þar sem Árni Gunnar Kristjánsson fyrir hönd Sæmundar Sæmundssonar sækir um byggingarleyfi fyrir gestahús við Ystabæ - Miðbæ 2 í Hrísey. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Árna Gunnar Kristjánsson.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.
Ystibær-Miðbær 3 - umsókn um byggingarleyfi fyrir geymsluhúsi
Málsnúmer 2022031064Erindi dagsett 23. mars 2022 þar sem Árni Gunnar Kristjánsson fyrir hönd Skuggsjár sækir um byggingarleyfi fyrir geymsluhúsi við Ystabæ - Miðbæ 3 í Hrísey. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Árna Gunnar Kristjánsson.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.
Fylgiskjöl
Hafnarstræti 23B - umsókn um byggingarleyfi fyrir fjölgun íbúða
Málsnúmer 2022030672Erindi dagsett 15. mars 2022 þar sem Rögnvaldur Harðarson fyrir hönd Grim apartments ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir breytingum í húsi nr. 23B við Hafnarstræti. Fyrirhugað er að fjölga íbúðum úr tveimur í fjórar. Innkomnar nýjar teikningar 11. apríl 2022.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið. Eignaskiptasamningur þarf að liggja fyrir áður en eignaskiptingin verður tilkynnt til Þjóðskrár.