Bæjarráð - 3551
- Kl. 08:15 - 11:05
- Fundarsalur á 2. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 3551
Nefndarmenn
- Guðmundur Baldvin Guðmundssonformaður
- Dagbjört Elín Pálsdóttir
- Matthías Rögnvaldsson
- Preben Jón Pétursson
- Sóley Björk Stefánsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Eiríkur Björn Björgvinssonbæjarstjóri
- Dagný Magnea Harðardóttirfundarritari
Vinnuskóli 2017 - laun
Málsnúmer 2017030189Lögð fram tillaga um laun í Vinnuskóla Akureyrarbæjar sumarið 2017.
Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri stjórnsýslusviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.Bæjarráð samþykkir að laun unglinga í Vinnuskóla Akureyrarbæjar sumarið 2017 hækki um 10% og verði sem hér segir:
14 ára kr. 501
15 ára kr. 572
16 ára kr. 751
10,17% orlof er greitt til viðbótar við tímakaup.
Bæjarráð samþykkir einnig að hámarksfjöldi tíma verði sem hér segir:
14 ára 105 tímar
15 ára 180 tímar
16 ára 240 tímarFlugklasi - samstarf um millilandaflug til Norðurlands
Málsnúmer 2011060107Lagt fram erindi dagsett 29. mars 2017 frá Hjalta Páli Þórarinssyni verkefnastjóra Air 66N.
Í erindinu kemur meðal annars fram að sveitarfélög á Norðurlandi hafi um árabil stutt við starf flugklasans með sérstökum fjárframlögum.
Óskað er eftir aðkomu sveitarfélagsins til að fjármagna starf verkefnastjóra með framlagi sem nemur 300 kr. á hvern íbúa á ári í 2 ár (2018-2019).
Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og felur bæjarstjóra að ræða við forvarsmenn Air 66N um frekari útfærslu á verkefninu.
Úttekt á smávirkjanakostum í Eyjafirði
Málsnúmer 2017040006Erindi ódagsett frá starfsmönnum Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar varðandi úttekt á smávirkjanakostum í Eyjafirði. Í erindinu óskar AFE eftir heimild sveitarfélaganna í Eyjafirði til að hafa milligöngu um að leita tilboða í að gera úttekt á smávirkjanakostum í Eyjafirði.
Bæjarráð veitir AFE heimild til að hafa milligöngu um að leita tilboða í að gera úttekt á smávirkjanakostum í Eyjafirði.
Fylgiskjöl
Skógræktarfélag Eyfirðinga - ósk um aðkomu Akureyrarbæjar að rekstri sýningarreits í Kjarnaskógi
Málsnúmer 20170301886. liður í fundargerð umhverfis- og mannvirkjaráðs dagsett 31. mars 2017:
Lagt fram erindi dagsett 7. mars 2017 frá ræktunarafmælisnefnd Skógræktarfélags Eyfirðinga um aðkomu Akureyrarbæjar að rekstri sýningarreits fyrir tré og runna í Kjarnaskógi.
Umhverfis- og mannvirkjaráð fagnar framtakinu og vísar styrkumsókninni til bæjarráðs.Bæjarráð samþykkir að ganga til samninga um verkefnið og telur það falla vel að stefnu bæjarins um kolefnishlutlaust samfélag.
Fylgiskjöl
Holtahverfi, austan Krossanesbrautar - deiliskipulag - vinnuhópur
Málsnúmer 201604010113. liður í fundargerð skipulagsráðs dagsett 29. mars 2017:
Skipulagsnefnd samþykkti þann 11. maí 2016 að hefja vinnu við gerð deiliskipulags Holtahverfis og svæðisins austan Krossanesbrautar. Lagt er til að stofnaður verði launaður vinnuhópur og er meðfylgjandi tillaga að umfangi og tímaáætlun.
Skipulagsráð samþykkir framlagða tillögu og tilnefnir Tryggva Má Ingvarsson B-lista og Edward Hákon Huijbens V-lista í vinnuhópinn. Vísað er til bæjarráðs ósk um fjárveitingu fyrir vinnuhópinn.Bæjarráð vísar málinu aftur til skipulagsráðs og felur þeim að leggja fram ósk um viðauka vegna málsins í samræmi við nýsamþykktar verklagsreglur um viðauka.
Íbúalýðræði og gagnsæ stjórnsýsla
Málsnúmer 2015020002Farið yfir hugmyndir um persónukjör og vinnuhópi um íbúalýðræði falið að vinna áfram að málinu.
Stapi lífeyrissjóður - ársfundur 2017
Málsnúmer 2017030610Erindi dagsett 29. mars 2017 frá Inga Björnssyni f.h. stjórnar Stapa lífeyrissjóðs þar sem boðað er til ársfundar sjóðsins miðvikudaginn 3. maí nk. í Skjólbrekku í Mývatnssveit, kl. 13:00.
Bæjarráð felur formanni bæjarráðs í fjarveru bæjarstjóra að fara með umboð Akureyrarbæjar á fundinum.
Fylgiskjöl
Molta ehf - aðalfundur 2017
Málsnúmer 2017030580Erindi dagsett 27. mars 2017 frá Sigmundi E. Ófeigssyni fyrir hönd stjórnar Moltu þar sem boðað er til aðalfundar Moltu ehf, þriðjudaginn 11. apríl nk. kl. 13:15. Fundurinn verður haldinn á Hótel KEA, Akureyri.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að fara með umboð Akureyrarbæjar á aðalfundinum.
Fylgiskjöl
Viðtalstímar bæjarfulltrúa fundargerð
Málsnúmer 2016100117Lögð fram 6. fundargerð viðtalstíma bæjarfulltrúa dagsett 30. mars 2017. Fundargerðin er í 14 liðum.
Bæjarráð vísar 1. og 13. lið til bæjarstjóra, 2., 4., 5., 6., 7., 8., 9., 10., 11. og 14. lið til umhverfis- og mannvirkjasviðs, 3. lið til búsetusviðs, 12. liður er lagður fram til kynningar í bæjarráði.
Hverfisnefnd Giljahverfis - fundargerðir 2016-2017
Málsnúmer 2016010040Lagðar fram til kynningar 15., 16., 17., 18., 19., 20., 21., 22., 23. og 24. fundargerð hverfisnefndar Giljahverfis dagsettar 6. mars, 8. apríl, 12. og 20. maí, 15. ágúst, 15. september og 13. október 2016, 17. febrúar, 13. og 16. mars 2017.
Fylgiskjöl
- 15. Hverfisnefndarfundur 06.03.2016.pdf
- 16. Hverfisnefndarfundur 08.04.2016.pdf
- 17. Hverfisnefndarfundur 12.05.2016.pdf
- 18. Hverfisnefndarfundur 20.05.2016.pdf
- 20. fundur
- 20. Hverfisnefndarfundur 15.09.2016.pdf
- 19. Hverfisnefndarfundur 15.08.2016.pdf
- 21. fundur
- 21. Hverfisnefndarfundur 15.09.2016.pdf
- 22. fundur 2017
- 22. Hverfisnefndarfundur Giljahverfis 17.2.2017.pdf
- 23. fundur 2017
- 23. Hverfisnefndarfundur Giljahverfis 13.3.2017.pdf
- 24. fundur 2017 - aðalfundur
- 24. Aðalfundur Hverfisnefndar Giljahverfis 16.3.2017.pdf
Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga - fundargerðir 2017
Málsnúmer 2017010137Lögð fram til kynningar fundargerð 848. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga dagsett 24. mars 2017. Fundargerðina má finna á vefslóðinni: http://www.samband.is/um-okkur/fundargerdir-stjornar/searchmeetings.aspx
Fylgiskjöl
Frumvarp til laga um tekjustofna sveitarfélaga (sérstakt framlag úr Jöfnunarsjóði), 306. mál
Málsnúmer 2017030587Lagt fram til kynningar erindi dagsett 28. mars 2017 frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis þar sem óskað er umsagnar um frumvarp til laga um tekjustofna sveitarfélaga (sérstakt framlag úr Jöfnunarsjóði), 306. mál 2017.
Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 18. apríl nk. á netfangið nefndasvid@althingi.is.
Þingskjalið er hægt að sækja á vef Alþingis: http://www.althingi.is/altext/146/s/0418.htmlFylgiskjöl
Frumvarp til laga um umferðarlög (bílastæðagjöld), 307. mál
Málsnúmer 2017030588Lagt fram til kynningar erindi dagsett 28. mars 2017 frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis þar sem óskað er umsagnar um frumvarp til laga um umferðarlög (bílastæðagjöld), 307. mál 2017.
Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 11. apríl nk. á netfangið nefndasvid@althingi.is.
Þingskjalið er hægt að sækja á vef Alþingis: http://www.althingi.is/altext/146/s/0419.htmlFylgiskjöl