Velferðarráð - 1277
- Kl. 14:00 - 16:10
- Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
- Fundur nr. 1277
Nefndarmenn
- Erla Björg Guðmundsdóttirformaður
- Guðlaug Kristinsdóttir
- Róbert Freyr Jónsson
- Valur Sæmundsson
- Guðrún Karitas Garðarsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Guðrún Ólafía Sigurðardóttirsviðsstjóri fjölskyldusviðs
- Halldór Sigurður Guðmundssonframkvæmdastjóri ÖA
- Jón Hrói Finnssonsviðsstjóri búsetusviðs
- Kristbjörg Björnsdóttirfundarritari
Reglur um úthlutun leiguíbúða Akureyrarbæjar 2013 - 2016 - 2018
Málsnúmer 2013040041Reglur um úthlutun leiguíbúða lagðar fram að nýju en þær voru áður á dagskrá velferðarráðs þann 21. febrúar sl.
Magnús Valur Axelsson húsnæðisfulltrúi og Anna Marit Níelsdóttir forstöðumaður í félagsþjónustu sátu fundinn undir þessum lið.Velferðarráð samþykkir reglurnar og vísar þeim til bæjarstjórnar.
Guðrún Karítas Garðarsdóttir Æ-lista lagði fram eftirfarandi bókun: "Ég harma að reglur um dýrahald séu ekki rýmkaðar meira. Skv. lögum um fjöleignarhús þarf samþykki 2/3 hluta eigenda í fjölbýli til að halda megi hunda eða ketti. Sé sú samþykkt til staðar er óásættanlegt að Akureyrarbær skerði lífsgæði íbúa/leigjenda og mismuni fólki með þessum hætti. Gengið er út frá því að leigjendur, þar á meðal öryrkjar, geti ekki sinnt dýrum en í flestum tilfellum gera þeir það mjög vel. Þau dæmi sem það gengur ekki upp mega ekki vera ráðandi."Almennar íbúðir - lög nr. 52/2016 - stofnframlag - húsnæðisáætlun Akureyrarbæjar
Málsnúmer 2016060056Lögð fram húsnæðisáætlun frá VSO ráðgjöf en eftir útboð var ákveðið að taka tilboði þeirra um gerð húsnæðisáætlunar fyrir Akureyrarkaupstað. Möguleiki var að koma á framfæri athugasemdum ef einhverjar væru.
Magnús Valur Axelsson húsnæðisfulltrúi og Anna Marit Níelsdóttir forstöðumaður í félagsþjónustu sátu fundinn undir þessum lið.Velferðarráð bendir á að gert er ráð fyrir að allar litlar íbúðir séu byggðar í fjölbýlishúsi. Í áætlunum ráðsins um húsnæðisuppbyggingu er gert ráð fyrir byggingu lítilla sérbýla sem koma þarf fram í húsnæðisáætlun.
Aðgerðaráætlun gegn kynbundu ofbeldi og ofbeldi gegn börnum
Málsnúmer 2017110400Guðrún Sigurðardóttir sviðsstjóri fjölskyldusviðs lagði fram til kynningar drög að endurnýjaðri aðgerðaráætlun vegna kynbundins ofbeldis og ofbeldis gegn börnum.
Velferðarráð - rekstraryfirlit 2018
Málsnúmer 2018040006Lögð fram til kynningar rekstraryfirlit þriggja fyrstu mánaða ársins fyrir alla málaflokka velferðarráðs.
Velferðarstefna 2014 - 2018
Málsnúmer 2015010191Jón Hrói Finnsson sviðstjóri búsetusviðs kynnti stöðu vinnu við velferðarstefnu.
Málefni í vinnslu og gögn frá SFV
Málsnúmer 2015040217Aðalfundur Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu var haldinn 16. apríl sl. og sótti Halldór S. Guðmundsson framkvæmdastjóri Öldrunarheimila Akureyrar fundinn.
Lögð fram til kynningar ársskýrsla samtakanna fyrir starfsárið 2017-2018.Fylgiskjöl
ÖA - breyting á skammtímarými í dagþjálfunarrými
Málsnúmer 2018030309Framkvæmdastjóri ÖA, Halldór S. Guðmundsson, lagði fram til kynningar bréf til velferðarráðuneytis þar sem óskað er viðræðna um nýsköpunar- og þróunarverkefni þar sem rýmum í tímabundinni dvöl verði breytt í dagþjálfunarrými.
Fylgiskjöl
Jafnréttisáætlun og verkefni
Málsnúmer 2017040094Öldrunarheimili Akureyrar hlutu Jafnréttisviðurkenningu Akureyrar 2018 fyrir framlag sitt til jafnréttismála á Akureyri. Viðurkenningin var afhent á Vorkomu Akureyrarstofu sem fram fór sumardaginn fyrsta þann 19. apríl sl.
ÖA hefur á síðustu árum unnið að kynjagreiningu í starfseminni í samstarfi við Jafnréttisstofu og er nú í samstarfsverkefni undir heitinu "brjótum hefðirnar". Þá er reglulega auglýst sérstaklega eftir körlum til starfa.Velferðarráð óskar Öldrunarheimilum Akureyrar til hamingju með viðurkenninguna.
Upplýsingastefna Akureyrarbæjar
Málsnúmer 2015110167Stjórn Akureyrarstofu óskaði eftir umsögn velferðarráðs um upplýsingastefnu Akureyrarbæjar sem vinnuhópur hefur verið með í smíðum.
Velferðarráð gerir ekki athugasemdir við upplýsingastefnuna og lýsir ánægju sinni með hana.