Samfélags- og mannréttindaráð - 88
- Kl. 16:45 - 18:45
- Fundarherbergi á 3. hæð í Rósenborg
- Fundur nr. 88
Nefndarmenn
- Hlín Bolladóttirformaður
- Heimir Haraldsson
- Tryggvi Þór Gunnarsson
- Anna Hildur Guðmundsdóttir
- Guðlaug Kristinsdóttir
- Katrín Björg Ríkarðsdóttirfundarritari
Starfsáætlun samfélags- og mannréttindaráðs 2011-2014
Málsnúmer 2010090136Umræður um starfsáætlun samfélags- og mannréttindaráðs sem verður tekin til umfjöllunar á fundi bæjarstjórnar 7. júní nk. Formaður samfélags- og mannréttindaráðs mun þar gera grein fyrir starfsáætluninni.

Samfélags- og mannréttindadeild - rekstraryfirlit 2011
Málsnúmer 2010090135Lagt fram til kynningar rekstraryfirlit janúar til apríl 2011 fyrir þá málaflokka sem heyra undir samfélags- og mannréttindadeild.

Fjölskyldustefna Akureyrarbæjar - endurskoðun
Málsnúmer 2008080068Umræður um endurskoðun á Fjölskyldustefnu Akureyrarbæjar. Fjölskyldustefnan var fyrst samþykkt í bæjarstjórn vorið 2002. Endurskoðuð útgáfa var samþykkt haustið 2005.

Samfélags- og mannréttindaráð leggur til við bæjarstjórn að skipaður verði vinnuhópur sem verði falið að meta hvort markmiðum Fjölskyldustefnu Akureyrarbæjar er nú þegar mætt í öðrum stefnum bæjarins eða hvort ástæða sé til að endurskoða stefnuna.

Ábyrgð foreldra
Málsnúmer 2009050034Umræður um ábyrgð foreldra á ólögráða ungmennum í ljósi þess að í hönd fer sá árstími þegar haldnar eru ýmsar bæjarhátíðir og sumarskemmtanir um allt land.

Samfélags- og mannréttindaráð hvetur foreldra til að axla ábyrgð á uppeldishlutverki sínu og gefa ekki ólögráða ungmennum leyfi til að sækja skemmtanir og viðburði, jafnvel í önnur sveitarfélög, án þess að ráðstafanir hafi verið gerðar til að tryggja öryggi þeirra.

Jafnréttisáætlanir stofnana
Málsnúmer 2008090024Í jafnréttisstefnu Akureyrarbæjar er kveðið á um að allir vinnustaðir þar sem starfa fleiri en 25 starfsmenn skuli gera jafnréttisáætlanir í samræmi við lög um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla nr. 10/2008. Jafnréttisáætlun búsetudeildar verður lögð fram til kynningar.

Samfélags- og mannréttindaráð fagnar jafnréttisáætluninni og hvetur þær stofnanir sem ekki hafa lokið vinnu við gerð jafnréttisáætlana að gera það sem fyrst.