Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 587
- Kl. 13:00 - 13:45
- Fundarherbergi skipulagsdeild
- Fundur nr. 587
Nefndarmenn
- Bjarki Jóhannessonskipulagsstjóri
- Leifur Þorsteinsson
- Björn Jóhannsson
Starfsmenn
- Stefanía G Sigmundsdóttirfundarritari
Kjarnagata 39 (49-53) - umsókn um breytingar
Málsnúmer 2015080055Erindi dagsett 19. maí 2016 þar sem Þröstur Sigurðsson f.h. Byggingarfélagsins Hyrnu ehf., kt. 710594-2019, sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum fyrir hús nr. 39 við Kjarnagötu. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Þröst Sigurðsson.
Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.
Munkaþverárstræti 30 - umsókn um bílastæði
Málsnúmer 2016050184Erindi dagsett 20. maí 2016 þar sem Sigurður Kristjánsson sækir um bílastæði og veggi á lóð nr. 30 við Munkaþverárstræti. Meðfylgjandi er teikning með samþykki nágranna.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.
Stóragerði 15 - umsókn um bílastæði
Málsnúmer 2016050198Erindi dagsett 23. maí 2016 þar sem Róbert Már Kristinsson sækir um stækkun á bílastæði á lóð nr. 15 við Stóragerði. Meðfylgjandi er teikning.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið, enda beri umsækjandi allan kostnað vegna breytinganna.
Stóragerði 17 - umsókn um bílastæði
Málsnúmer 2016050090Erindi dagsett 9. maí 2016 þar sem Sigrún María Bjarnadóttir og Gísli Einar Árnason sækja um stækkun á bílastæði á lóð nr. 17 við Stóragerði. Einnig er sótt um lengingu á götu til vesturs um 1 meter.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið, enda beri umsækjendur allan kostnað vegna breytinganna.
Strandgata 3 - umsókn um byggingarleyfi fyrir breytingum inni
Málsnúmer 2015100056Erindi dagsett 19. maí 2016 þar sem Magnús Ingólfsson f.h. Sjóvá, kt. 650909-1270, sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum fyrir hús nr. 3 við Strandgötu. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Baldur Ó. Svavarsson.
Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.
Hafnarstræti 83-85 - umsókn um breytingar
Málsnúmer BN100096Erindi dagsett 19. maí 2016 þar sem Þröstur Sigurðsson f.h. Regins atvinnuhúsnæðis ehf., kt. 521009-1010, sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum fyrir hús nr. 83-85 við Hafnarstræti. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Þröst Sigurðsson.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.
Austurbrú 2-4 - umsókn um byggingarleyfi
Málsnúmer 2016040126Erindi dagsett 15. apríl 2016 þar sem Logi Már Einarsson f.h. Furuvalla 7 ehf., kt. 530212-0170, sækir um byggingarleyfi fyrir nýbyggingu við Austurbrú 2-4. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Loga Má Einarsson. Innkomnar teikningar 25. maí 2016.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.
Vörðutún 2, lóðastækkun - umsókn um deiliskipulagsbreytingu
Málsnúmer 2016050120Erindi dagsett 3. maí 2016 frá Pálma Gauta Hjörleifssyni þar sem hann óskar eftir leyfi til að byggja skjólvegg til hljóðvarnar, 0,5 m frá gangstétt við Naustagötu og Vallartún. Innkomin teikning eftir Loga Má Einarsson 24. maí 2016.
Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu erindisins og óskar eftir frekari gögnum sjá fylgiblað.