Umhverfis- og mannvirkjaráð - 43
- Kl. 08:15 - 11:15
- Fundarsalur á 1. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 43
Nefndarmenn
- Andri Teitssonformaður
- Ingibjörg Ólöf Isaksen
- Unnar Jónsson
- Gunnar Gíslason
- Jana Salóme I. Jósepsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Guðríður Friðriksdóttirsviðsstjóri umhverfis- og mannvirkjasviðs
- Dóra Sif Sigtryggsdóttirforstöðumaður rekstrardeildar ritaði fundargerð
- Steindór Ívar Ívarssonforstöðumaður viðhaldsdeildar
- Tómas Björn Haukssonforstöðumaður nýframkvæmda
- Hildigunnur Rut Jónsdóttirforstöðumaður umhverfis- og sorpdeildar
Glerárskóli - bygging leikskóla, lóðar, tengibygginga og samkomusals
Málsnúmer 2018050021Ingólfur Guðmundsson frá Kollgátu ehf mætti á fundinn og fór yfir greiningu á framkvæmdaleiðum.
Nökkvi siglingaklúbbur - framkvæmdir vegna uppbyggingarsamnings
Málsnúmer 2015030205Lögð fram stöðuskýrsla 3 dagsett 27. september 2018 og farið yfir framhaldið.
Fylgiskjöl
Drottningarbrautarstígur - Leikhúsbrú
Málsnúmer 2017100322Lagt fram skilamat fyrir framkvæmdina dagsett 24. október 2018.
Fylgiskjöl
Klettaborg 43 - íbúðakjarni
Málsnúmer 2017090011Lögð fram stöðuskýrsla 3 dagsett 24. október 2018 og óskað eftir leyfi til að fara með framkvæmdina í útboð.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að farið verði í útboð á framkvæmdinni.
Fylgiskjöl
Sundlaug Grímseyjar - endurbætur í kjallara
Málsnúmer 2018090063Lagt fram minnisblað dagsett 4. september 2018 um kostnað á endurbótum á búnaði í kjallara Sundlaugar Grímseyjar vegna breytingar á ljósavél Rarik.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að farið verði í að skipta um varmaskipta sem fyrir eru og eru hitaðir af kælivatni ljósavéla Rarik. Setja stærri varmaskipta þannig að betri nýting sé á vatni sem fer í upphitun á sundlaugarvatni, hreinsa allar lagnir og loka, setja nýjar sandsíur sem hægt er að stýra frá frá Akureyri í gegnum IGSS hússtjórnarkerfi.
Naustahverfi 7. áfangi - Hagar
Málsnúmer 2017080054Lögð fram stöðuskýrsla 5 dagsett 24. október 2018.
Fylgiskjöl
Brýr yfir Eyjafjarðará
Málsnúmer 2017120110Lagt fram minnisblað 2 dagsett 24. október 2018.
Alheimshreinsunardagurinn og evrópska samgönguvikan
Málsnúmer 2018100342Lögð fram minnisblöð dagsett 22. október 2018 um gang verkefnanna.
Hamrar - framkvæmdaþörf á tjaldsvæðinu
Málsnúmer 2018100339Lagt fram minnisblað dagsett 16. október 2018 frá rekstaraðilum tjaldsvæðisins.
Umhverfis- og mannvirkjaráð leggur til að skipaður verði launaður vinnuhópur um framtíðarsýn tjaldsvæðanna og endurnýjun rekstrarsamninga við Skátafélagið Klakk. Ráðið óskar eftir tilnefningu fulltrúa í vinnuhópinn frá frístundarráði.
Grímsey - yfirfærsla á vatnsveitu til NO
Málsnúmer 2018100338Lögð fram drög að samningi við Norðurorku hf um sölu á vatnsveitunni í Grímsey.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir sölu á vatnsveitunni í Grímsey til Norðurorku hf.
Kaldbaksgata - endurgerð með NO
Málsnúmer 2018100348Lagt fram opnunarblað tilboða dagsett 15. október 2018.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda, Finns ehf.
Fylgiskjöl
Mjólkursamlagsstígur - lýsing á göngustíg
Málsnúmer 2018100350Lagt fram opnunarblað tilboða dagsett 15. október 2018.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda, Vélaleigu HB ehf.
Fylgiskjöl
Jaðar - umhverfismat á svæðinu
Málsnúmer 2018010445Lögð fram tillaga að matsáætlun vegna mats á umhverfisáhrifum haugsetningar, landmótunar og stækkunar á Jaðarsvelli á Akureyri dagsett 7. ágúst 2018.
Fylgiskjöl
Fjárhagsáætlun umhverfis- og mannvirkjasviðs 2019
Málsnúmer 2018080973Farið yfir framkvæmdayfirlit 2019-2021.