Íþróttaráð - 187
- Kl. 15:00 - 16:52
- Fundarherbergi á 3. hæð í Rósenborg
- Fundur nr. 187
Nefndarmenn
- Ingibjörg Ólöf Isaksenformaður
- Árni Óðinsson
- Birna Baldursdóttir
- Jónas Björgvin Sigurbergsson
- Guðrún Þórsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Ellert Örn Erlingssonforstöðumaður íþróttamála ritaði fundargerð
Frístundastyrkur Akureyrarbæjar
Málsnúmer 2006040018Endurskoðun úthlutunarreglna frístundastyrks Akureyrarbæjar.
Íþróttaráð samþykkir breytingar á úthlutunarreglum frístundastyrksins í samræmi við umræður á fundinum.
Forstöðumanni íþróttamála falið að kynna breytingarnar fyrir hlutaðeigandi aðilum.Hljóðvist í íþróttamannvirkjum
Málsnúmer 2015100029Lagðar fram niðurstöður úr hljóðvistarmælingum Vinnueftirlitsins sem gerðar voru í íþróttamannvirkjum Akureyrarbæjar í nóvember 2015.
Íþróttaráð felur forstöðumanni íþróttamála að kynna niðurstöður fyrir skólanefnd Akureyrarbæjar, skólastjórum, íþróttakennurum, forstöðumönnum og starfsmönnum íþróttamannvirkja.
Almennt komu íþróttamannvirki Akureyrarbæjar vel út í hljóðvistarmælingum Vinnueftirlitsins.
Íþróttaráð felur Fasteignum Akureyrarbæjar að koma með tillögur og kostnaðargreina úrbætur í þeim þremur mannvirkjum sem krefjast betri hljóðvistar samkvæmt niðurstöðum mælinganna.Aðgerðarhópur um framtíðarrekstur Akureyrarbæjar - nefndir og deildir
Málsnúmer 2016020127Umræður og vinna íþróttaráðs vegna aðgerðarhóps um framtíðarrekstur Akureyrarbæjar.
Íþróttaráð felur formanni að vinna málið áfram.