Umhverfis- og mannvirkjaráð - 15
- Kl. 08:15 - 11:45
- Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 15
Nefndarmenn
- Ingibjörg Ólöf Isaksenformaður
- Eiríkur Jónsson
- Sæbjörg Sylvía Kristinsdóttir
- Gunnar Gíslason
- Hermann Ingi Arasonáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Guðríður Friðriksdóttirsviðsstjóri umhverfis- og mannvirkjasviðs
- Tómas Björn Haukssonforstöðumaður tæknideildar
- Kristín Sigurðardóttirfundarritari
Stöðuskýrslur rekstrar 2017
Málsnúmer 2017020164Lögð fram stöðuskýrsla fyrir rekstur umhverfis- og mannvirkjasviðs dagsett 15. ágúst 2017.
Hafnarstræti 73 og 75 - kauptilboð
Málsnúmer 2017080044Lögð fram til kynningar kauptilboð sem bárust í sölu á Hafnarstræti 73 og 75.
Fjögur tilboð bárust í Hafnarstræti 73 og 75:
Kadett ehf kr. 74.700.000
Var þróunarfélag ehf kr. 71.000.000
Vigas ehf kr. 45.000.000
Daníel Smárason kr. 62.000.000
Eitt tilboð barst í Hafnarstræti 75:
Árnes ehf kr. 5.050.000
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að fela sviðsstjóra að ganga til viðræðna við hæstbjóðanda.
Naustaskóli 6. áfangi - lóð
Málsnúmer 2017020140Lagt fram til kynningar minnisblað um framkvæmdir á lóð.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að ganga til samninga við Garð og hönnun ehf og samþykkir að kaupa leiktæki samkvæmt framlögðum lista.
Íbúðalánasjóður - möguleg kaup á fasteignum sjóðsins

Málsnúmer 2017060071Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að taka upp viðræður við Íbúðalánasjóð um kaup á eignum.
Umhverfis- og mannvirkjasvið - starfsmannamál

Málsnúmer 2017050113Lögð fram til kynningar ráðning yfirmanns í umhverfismálum og sorphirðu.
Umhverfis- og mannvirkjaráð felur sviðsstjóra að auglýsa starf forstöðumanns í umhverfismálum og sorphirðu.
Umhverfis- og mannvirkjasvið - plastlaus september 2017

Málsnúmer 2017080046Lagt fram til kynningar.
Umhverfis- og mannvirkjaráð þakkar boðið en getur ekki orðið við erindinu. Umhverfis- og mannvirkjaráð er að vinna eftir Umhverfis- og samgöngustefnu Akureyrarbæjar þar sem meðal annars eitt verkefni er að draga úr plasnotkun.
ÖA - stefna og starfsemi
Málsnúmer 201301021414. liður á dagskrá velferðarráðs 24. maí 2017 þar sem óskað var eftir tilnefningu frá umhverfis- og mannvirkjaráði í starfshóp um greiningu á þörfum fyrir viðhald og endurbætur á húsnæði ÖA í Austurbyggð.
Umhverfis- og mannvirkjaráð tilnefnir Ingibjörgu Isaksen B-lista og Guðríði Friðriksdóttur sviðsstjóra í vinnuhópinn
Hagar - gatnagerð
Málsnúmer 2017080054Lagt fram minnisblað um lóðaframboð Hagahverfi.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að bjóða út verkið.
SVA - ábendingar varðandi nýtt leiðakerfi 2016 til 9. júní 2017
Málsnúmer 2016100103Farið yfir ábendingar á leiðakerfi SVA.
Jónas Vigfússon forstöðumaður Umhverfismiðstöðvar og Rúna Ásmundsdóttir frá Eflu ehf mættu á fundinn undir þessum lið.Umhverfis- og mannvirkjaráð þakkar Jónasi Vigfússyni og Rúnu Ásmundsdóttur fyrir yfirferðina.
Hermann Arason V-lista vék af fundi kl. 11:02.
SVA - sala auglýsinga á strætisvagna í eigu Akureyrarbæjar
Málsnúmer 2017020079Farið yfir hvort eigi að leyfa auglýsingar á strætisvögnum.
Jónas Vigfússon forstöðumaður Umhverfismiðsöðvar sat fundinn undir þessum lið.Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að fara í útboð samkvæmt framlögðum gögnum.