Skólanefnd - 20
- Kl. 13:30 - 15:49
- Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
- Fundur nr. 20
Nefndarmenn
- Bjarki Ármann Oddssonformaður
- Dagný Þóra Baldursdóttir
- Siguróli Magni Sigurðsson
- Áshildur Hlín Valtýsdóttir
- Gunnar Gíslason
- Anna María Hjálmarsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Soffía Vagnsdóttirfræðslustjóri ritaði fundargerð
- Hrafnhildur G Sigurðardóttirleikskólafulltrúi
- Árni Konráð Bjarnasonrekstrarstjóri
Heimsókn frá BUG teymi SAk - fræðsla um geðheilbrigðismál barna
Málsnúmer 2015100101Gísli Kort Kristófersson sérfræðingur í geðhjúkrun, lektor við heilbrigðisvísindasvið HA og Arnfríður Kjartansdóttir sálfræðingur komu á fundinn með fræðslu um geðheilbrigðismál barna.
PMTO - foreldrafærni/SMT - skólafærni - skólanefnd
Málsnúmer 2006070001Guðbjörg Ingimundardóttir starfsmaður á skóladeild, félagsráðgjafi og sérfræðingur í PMTO meðferð kynnti stöðu í ráðgjöf PMTO í leik- og grunnskólum Akureyrar og á landsvísu.
Hverfisnefnd Holta- og Hlíðahverfis - fundargerðir 2015
Málsnúmer 2015010101Erindi sem barst til bæjarráðs þann 8. október 2015. Erindið er undir 5. lið fundargerðar undir heitinu Sparkvöllur við Glerárskóla.
Allir sparkvellir eiga að vera upplýstir til kl. 22:00 á kvöldin þegar dagsbirtu nýtur ekki við. Málið hefur verið leyst.
Ályktun stjórnar heimilis og skóla um endurnýjun gervigrasvalla vegna eiturefna í dekkjakurli
Málsnúmer 2015090284Mál tekið fyrir á fundi skólanefndar þann 5. október 2015 undir 5. lið varðandi gúmmíkurl á gervigrasvöllum við skóla.
Allir sparkvellir bæjarins eru með gúmmí sem er svart dekkjarkurl sem var sett í/á vellina þegar þeir voru byggðir.
Það gúmmí sem hefur verið notað hefur uppfyllt þá staðla sem krafist er.
Skólanefnd leggur áherslu á að gúmmímál verði skoðuð sérstaklega næst þegar skipt verður um gervigras eða gúmmí á knattspyrnuvöllum sveitarfélagins. Nefndin kemur til með að fylgjast áfram með umræðum og rannsóknum er tengjast þessu málefni.Móttaka flóttamanna
Málsnúmer 2015090017Anna María Hjálmarsdóttir fulltrúi skólanefndar í undirbúningshópi fyrir móttöku flóttamanna fór yfir stöðuna í undirbúningsvinnunni.
Lundarskóli/öryggisnefnd - aðfinnslur og athugasemdir starfsmanna
Málsnúmer 2015100093Lagt fram til kynningar erindi til Fasteigna Akureyrarbæjar frá öryggisnefnd Lundarskóla dagsett 8. október 2015. Erindið varðar aðfinnslur og athugasemdir starfsmanna Lundarskóla um heilsufar sitt og hugsanleg tengsl þess við húsnæði, búnað og loftgæði.
Fræðslustjóra falið að fylgjast með málinu.
Staðan í kjaramálum skólastjórnenda
Málsnúmer 2015100115Skólanefnd Akureyrarbæjar lýsir þungum áhyggjum af stöðunni í kjaramálum skólastjórnenda og hvetur hlutaðeigandi til þess að ljúka samningum sem fyrst þar sem óvissan sem þetta skapar getur haft veruleg áhrif á skólastarf.