Fræðsluráð - 15
- Kl. 13:30 - 14:58
- Glerárgata 26, kálfur, fundarherbergi
- Fundur nr. 15
Nefndarmenn
- Ingibjörg Ólöf Isaksenformaður
- Heimir Haraldsson
- Rósa Njálsdóttir
- Þórhallur Harðarson
- Þuríður Sólveig Árnadóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Árni Konráð Bjarnasonforstöðumaður rekstrardeildar
- Karl Frímannssonsviðsstjóri fræðslusviðs ritaði fundargerð
Kynning á starfsemi skólaþjónustu Akureyrarkaupstaðar
Málsnúmer 2018080145Helga Vilhjálmsdóttir forstöðumaður skólaþjónustunnar kom á fundinn og gerði grein fyrir stöðu mála í skólaþjónustu Akureyrarkaupstaðar.
Þórhallur Harðarson mætti til fundar kl. 13.40
Fylgiskjöl
Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna - innleiðing
Málsnúmer 2014030109Vegna forfalla er fundarliðnum frestað til næsta fundar.
Fylgiskjöl
Fjárhagsáætlun fræðslusviðs 2019-2022
Málsnúmer 2018060289Árni Konráð Bjarnason forstöðumaður rekstrardeildar gerði grein fyrir stöðu fjárhagsáætlunargerðar 2019-2022.
Viðauki vegna málskostnaðar Lundarskóla
Málsnúmer 2018070574Í framhaldi af dómi Héraðsdóms Norðurlands eystra (nr. E-123/2016) frá 3. apríl 2018 í máli kennara við Lundarskóla liggur fyrir að heildarkostnaður Lundarskóla vegna málsins er kr. 7.038.051. Byggir sú upphæð á kröfuútreikningum, byggðum á bótakröfum og framlagðri matsgerð dómkvaddra matsmanna, málskostnaði og lögfræðikostnaði.
Fræðsluráð samþykkir að vísa óskinni um viðauka til bæjarráðs.
Fylgiskjöl
Gagnasíða fræðslusviðs
Málsnúmer 2018080146Karl Frímannsson sviðsstjóri fræðslusviðs kynnti hugmyndir að gagnasíðu fyrir fræðslusvið og myndræna framsetningu gagna.
Ósk um upplýsingar um fjölda kennslustunda í Glerárskóla
Málsnúmer 2018080054Mennta- og menningarmálaráðuneytið óskaði eftir upplýsingum um fjölda kennslustunda sem nemendur Glerárskóla fengu ekki kennslu í skólaárið 2017-2018. Karl Frímannsson sviðsstjóri lagði fram til kynningar svar við erindinu.
Fylgiskjöl