Samfélags- og mannréttindaráð - 77
- Kl. 16:30 - 19:00
- Fundarherbergi á 3. hæð í Rósenborg
- Fundur nr. 77
Nefndarmenn
- Hlín Bolladóttirformaður
- Tryggvi Þór Gunnarsson
- Heimir Haraldsson
- Anna Hildur Guðmundsdóttir
- Guðlaug Kristinsdóttir
- Katrín Björg Ríkarðsdóttirfundarritari
Forvarnamál - staðan
Málsnúmer 2009050034Staða forvarnamála yfirfarin. \nGréta Kristjánsdóttir umsjónarmaður forvarna sat fundinn undir þessum lið.

Anna Hildur Guðmundsdóttir mætti til fundarins kl. 17:05.
SAMAN-hópurinn - ályktun vegna skemmtana fyrir unglinga undir lögaldri á vínveitingastöðum
Málsnúmer 2010110119Ályktun SAMAN-hópsins vegna skemmtana fyrir unglinga undir lögaldri á veitingastöðum lögð fram til kynningar. SAMAN-hópurinn lýsir yfir áhyggjum af endurteknum unglingaskemmtunum á vegum einkaaðila fyrir börn undir lögaldri á vínveitingahúsum og vill hvetja forsvarsmenn sveitarfélaga til að móta sér stefnu í slíkum málum. \nGréta Kristjánsdóttir umsjónarmaður forvarna sat fundinn undir þessum lið.

Samfélags- og mannréttindaráð tekur málið upp í samhengi við endurskoðun forvarnastefnu fyrir Akureyrarbæ.

Fjölmenningarþing 2010
Málsnúmer 2010120014Farið yfir niðurstöður Fjölmenningarþings sem haldið var á vegum Alþjóðastofu Akureyrarbæjar 27. nóvember sl. en þangað var boðið bæjarbúum af erlendum uppruna. Tilgangur þingsins var að safna upplýsingum um hvernig bæta megi þjónustu í þessum málaflokki.\nGuðrún Blöndal verkefnisstjóri fjölmenningarmála sat fundinn undir þessum lið.

Fjárhagsáætlun 2011 - samfélags- og mannréttindaráð
Málsnúmer 2010090135Farið yfir áður samþykkt drög að fjárhagsáætlun fyrir árið 2011 fyrir þá málaflokka sem heyra undir samfélags- og mannréttindaráð með hliðsjón af umræðum frá fundi bæjarráðs 27. nóvember sl.\nAlfa Aradóttir forstöðumaður forvarna- og æskulýðsmála og Bergljót Jónasdóttir forstöðumaður tómstundamála sátu fundinn undir þessum lið.

Menntasmiðja unga fólksins - vinnuhópur
Málsnúmer 2008080024Lögð fram tillaga frá vinnuhópi um þróun á Menntasmiðju unga fólksins. Vinnuhópurinn var stofnaður á vegum samfélags- og mannréttindaráðs í ágúst sl. Tillagan felur í sér breytt fyrirkomulag á þjónustu við ungt fólk í vanda.\nAlfa Aradóttir forstöðumaður forvarna- og æskulýðsmála og Bergljót Jónasdóttir forstöðumaður tómstundamála sátu fundinn undir þessum lið.

Samfélags- og mannréttindaráð lýsir ánægju með starf vinnuhópsins og felur framkvæmdastjóra að vinna tillöguna áfram með fjárhagslega hagræðingu að leiðarljósi.

16 daga átak gegn kynbundnu ofbeldi 2010
Málsnúmer 2010120015Rætt um þátttöku samfélags- og mannréttindaráðs í útifundi vegna 16 daga átaks gegn kynbundnu ofbeldi. Að fundinum standa einnig Jafnréttisstofa og ýmis samtök kvenna á Akureyri.