Umhverfis- og mannvirkjaráð - 108
- Kl. 08:15 - 11:15
- Fundarherbergi UMSA
- Fundur nr. 108
Nefndarmenn
- Andri Teitssonformaður
- Unnar Jónsson
- Sunna Hlín Jóhannesdóttir
- Sigurjón Jóhannesson
- Berglind Bergvinsdóttir
- Jana Salóme I. Jósepsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Guðríður Friðriksdóttirsviðsstjóri umhverfis- og mannvirkjasviðs
- Georg Fannar Haraldssonverkefnastjóri ritaði fundargerð
Fjárhagsáætlun UMSA 2022
Málsnúmer 2021081199Farið yfir framkvæmdaáætlun 2022 hjá Fasteignum Akureyrarbæjar.
Kristján Snorrason verkefnastjóri nýframkvæmda sat fundinn undir þessum lið.Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir framlagða framkvæmdaáætlun fyrir sitt leyti og vísar til bæjarráðs.
Sorphirða í Akureyrarbæ - útboð 2022
Málsnúmer 2021101499Farið yfir endurnýjun á þjónustusamningi í sorpmálum 2022. Samningur við Terra rennur út í lok nóvember 2022.
Eygerður Margrétardóttir sérfræðingur hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga kynnti gegnum fjarfundarbúnað breytingar á sorpmálum sem taka gildi 1. janúar 2023.
Rut Jónsdóttir forstöðumaður umhverfis- og sorpdeildar sat fundinn undir þessum lið.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að fela Rut það hlutverk að fara af stað með vinnu á útboði í sorpmálum með tilliti til nýrra laga sem taka gildi 1. janúar 2023. Samþykkt var að vinna nýtt útboð til samræmis við breytingar á lögum.
Svæðisáætlun um meðhöndlun úrgangs - endurskoðun svæðisáætlunar
Málsnúmer 2021101496Tekin fyrir svæðisáætlun um meðhöndlun úrgangs á Norðurlandi 2015-2026 þar sem talað er um að sveitarstjórn skuli á a.m.k. sex ára fresti meta og taka ákvörðun um hvort þörf sé á að endurskoða svæðisáætlun um meðhöndlun úrgangs.
Rut Jónsdóttir forstöðumaður umhverfis- og sorpdeildar sat fundinn undir þessum lið.Umhverfis- og mannvirkjaráð vísar málinu til SSNE og að vinna við nýja svæðisáætlun eigi að taka mið af nýjum lögum um úrgangsmál.
Snjómokstur 2021-2022
Málsnúmer 2021101632Ræddar breytingar á forgangi í snjómokstri 2021-2022.
Rut Jónsdóttir forstöðumaður umhverfis- og sorpdeildar sat fundinn undir þessum lið.Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir framlagðar tillögur ásamt viðbót sem rætt var um á fundinum.
Stígagerð á Glerárdal - erindi frá Ferðafélagi Akureyrar
Málsnúmer 2021091480Svarbréf Ferðafélags Akureyrar dagsett 13. október 2021 varðandi framkvæmdir við stíg á Glerárdal lagt fram til upplýsingar.
Rut Jónsdóttir forstöðumaður umhverfis- og sorpdeildar sat fundinn undir þessum lið.Umhverfis- og mannvirkjaráð fyrirhugar skoðunarferð um svæðið næsta vor.
Bílastæðasjóður - gjaldtaka
Málsnúmer 2019050628Tekin fyrir útfærsla á gjaldtökukerfi fyrir bifreiðastæðasjóð Akureyrar.
Tómas Björn Hauksson forstöðumaður nýframkvæmda sat fundinn undir þessum lið.Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að innleiða gjaldtökukerfi í kringum áramót og að settir verði upp 3 stöðumælar. Aðal greiðsluleiðin verði snjallforrit í síma.
Holtahverfi - gatnagerð og lagnir
Málsnúmer 2021023068Lagt fram minnisblað dagsett 21. nóvember 2021 varðandi opnun tilboða í gatnagerð og lagnir í Holtahverfi norður 1. áfangi.
Tómas Björn Hauksson forstöðumaður nýframkvæmda sat fundinn undir þessum lið.Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að ganga til samninga við Nesbræður ehf.
Umhverfismiðstöð - reglubundin endurnýjun tækja 2021
Málsnúmer 2021040823Lagt fram minnisblað dagsett 22. október 2021 varðandi endurnýjun á tækjum umhverfismiðstöðvar og SVA.
Farið var yfir endurnýjun á tækjum umhverfismiðstöðvar og SVA. Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir framlagðar tillögur, hafa þarf vistvæn ökutæki til hliðsjónar í kaupum á tækjum.
Fundargerðir 2021
Málsnúmer 2021031577Verkfundargerðir fyrir Glerárbrú, Skarðshlíð, Lundarskóla A-álmu og Lundarskóla B-álmu lagðar fram.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir framlagðar verkfundargerðir.