Umhverfis- og mannvirkjaráð - 80
- Kl. 08:15 - 09:51
- Fjarfundur
- Fundur nr. 80
Nefndarmenn
- Andri Teitssonformaður
- Unnar Jónsson
- Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir
- Sigurjón Jóhannesson
- Berglind Bergvinsdóttir
- Jana Salóme I. Jósepsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Guðríður Friðriksdóttirsviðsstjóri umhverfis- og mannvirkjasviðs
- Steindór Ívar Ívarssonforstöðumaður viðhaldsdeildar
- Dóra Sif Sigtryggsdóttirforstöðumaður rekstrardeildar ritaði fundargerð
Hörgárbraut - Hlíðarbraut - endurgerð gatnamóta
Málsnúmer 2020060941Lagt fram minnisblað dagsett 25. júní 2020 vegna væntanlegra framkvæmda.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að fara í framkvæmdir við gatnamótin á Hörgárbraut og Hlíðarbraut ásamt Vegagerðinni og mun framkvæmdin rúmast innan framkvæmdaáætlunar ársins 2020.
Sigurhæðir - breytingar vegna fyrirhugaðrar útleigu
Málsnúmer 2020060921Lagt fram minnisblað dagsett 25. júní 2020 þar sem farið er yfir mögulega útleigu á húsinu sem íbúðarhúsi.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að málið verði unnið áfram miðað við framlagðar tillögur.
Skjaldarvík - framlenging leigusamnings
Málsnúmer 2018110055Lagður fram húsaleigusamningur við Concept ehf. sem gildir til 31. desember 2026.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir framlagðan leigusamning og felur sviðsstjóra að ganga frá málinu.
Hrísey - Hlein - fyrirspurn um hugsanleg kaup á eigninni
Málsnúmer 2020060812Lagt fram erindi dagsett 21. júní 2020 frá Theódóru Kristjánsdóttur og Teiti Björgvinssyni um möguleg kaup á eigninni.
Umhverfis- og mannvirkjaráð þakkar erindið. Ekki stendur til að selja húsið að svo stöddu en ef sú ákvörðun verður tekin þá verður húsið auglýst til sölu á almennum markaði.
Lundarskóli - loftgæði
Málsnúmer 2020020505Lagt fram minnisblað dagsett 23. júní 2020 vegna endurbóta á tveimur álmum í Lundarskóla.
Hlíð - endurbætur á leiguíbúðum
Málsnúmer 2020060076Lagt fram minnisblað dagsett 25. júní 2020 varðandi endurbætur á tveimur íbúðum í raðhúsunum við Hlíð.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að farið verði í endurbætur á íbúðunum og að framlag Akureyrarbæjar til framkvæmdanna að upphæð 12,2 milljónir króna verði tekið af liðnum Hlíð endurbætur á eldra húsnæði í framkvæmdaáætlun ársins 2020.
Glerá - göngu- og reiðbrú ásamt stíg
Málsnúmer 2019110416Lögð fram stöðuskýrsla 1 dagsett 19. júní 2020.