Bæjarstjórn - 3467
- Kl. 16:00 - 17:17
- Hamrar í Hofi
- Fundur nr. 3467
Nefndarmenn
- Halla Björk Reynisdóttirforseti bæjarstjórnar
- Hlynur Jóhannsson
- Ingibjörg Ólöf Isaksen
- Guðmundur Baldvin Guðmundsson
- Heimir Haraldsson
- Hilda Jana Gísladóttir
- Andri Teitsson
- Eva Hrund Einarsdóttir
- Gunnar Gíslason
- Sóley Björk Stefánsdóttir
- Þórhallur Jónsson
Starfsmenn
- Ásthildur Sturludóttirbæjarstjóri
- Elín Dögg Guðjónsdóttirfundarritari
Lánasjóður sveitarfélaga - lántaka 2020
Málsnúmer 2020010444Lögð fram tillaga um lántöku Akureyrarbæjar hjá Lánasjóði sveitarfélaga í tengslum við byggingu þjónustukjarna í Klettaborg. Bæjarráð samþykkti tillöguna fyrir sitt leyti þann 23. janúar sl.
Bæjarstjórn Akureyrarbæjar samþykkir að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga að höfuðstólsfjárhæð allt að kr. 85.609.023 með útgreiðslufjárhæð allt að kr. 93.000.000, með lokagjalddaga þann 15. nóvember 2055, í samræmi við skilmála að lánasamningi sem liggja fyrir á fundinum og bæjarstjórn hefur kynnt sér.
Bæjarstjórn Akureyrarbæjar samþykkir að til tryggingar láninu (höfuðstólsfjárhæðinni, uppgreiðslugjaldi, auk vaxta, dráttarvaxta og kostnaðar), standa tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, nánar tiltekið útsvarstekjur og framlög til sveitarfélagsins úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga.
Er lánið tekið vegna byggingar þjónustuíbúða fyrir fólk með fötlun, sbr. 3. gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélags um Lánsjóð sveitarfélaga nr. 150/2006.
Jafnframt er bæjarstjóra, Ásthildi Sturludóttur, veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Akureyrarbæjar að undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar sem tengjast lántöku þessari, þ.m.t. beiðni um útborgun láns.Hlíðarfjall - rekstur
Málsnúmer 2019070527Lögð fram drög að erindisbréfi stjórnar Hlíðarfjalls sem bæjarráð samþykkti á fundi sínum 23. janúar sl. Jafnframt lögð fram tillaga bæjarráðs að skipan stjórnar.
Guðmundur Baldvin Guðmundsson kynnti drögin. Einnig tók til máls Þórhallur Jónsson.
Bæjarstjórn samþykkir framlögð drög að erindisbréfi með þeim breytingum sem gerðar voru á fundinum. Jafnframt skipar bæjarstjórn Höllu Björk Reynisdóttur L-lista formann stjórnar, Andra Teitsson L-lista og Evu Hrund Einarsdóttur D-lista í stjórn Hlíðarfjalls og Guðmund Baldvin Guðmundsson B-lista sem varamann með 10 samhljóða atkvæðum.
Þórhallur Jónsson D-lista situr hjá við afgreiðslu málsins.Fylgiskjöl
Reglur um rafræna vöktun hjá Akureyrarbæ
Málsnúmer 2019010352Lögð voru fram drög að reglum Akureyrarbæjar um rafræna vöktun öryggismyndavéla.
Bæjarráð samþykkti drögin fyrir sitt leyti þann 23. janúar sl. og vísaði þeim til afgreiðslu bæjarstjórnar.Hilda Jana Gísladóttir kynnti reglurnar.
Bæjarstjórn samþykkir framlögð drög á reglum um rafræna vöktun hjá Akureyrarbæ með 11 samhljóða atkvæðum.Fylgiskjöl
Gisting á íbúðarsvæðum - rammaskipulag
Málsnúmer 2018020130Liður 1 í fundargerð skipulagsráðs dagsettri 29. janúar 2020:
Lögð fram að lokinni kynningu skv. 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillaga að breytingu á aðalskipulagi 2018-2030 sem felur í sér breytingu á stefnu varðandi heimildir fyrir rekstrarleyfisskylda gististarfsemi á íbúðarsvæðum. Engar athugasemdir bárust á kynningartíma.
Skipulagsráð leggur til við bæjarstjórn að aðalskipulagsbreytingin verði auglýst samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og feli skipulagssviði að senda breytinguna til athugunar Skipulagsstofnunar.Ingibjörg Ólöf Isaksen kynnti tillögu skipulagsráðs. Einnig tók til máls Sóley Björk Stefánsdóttir.
Bæjarstjórn samþykkir með 11 samhljóða atkvæðum að aðalskipulagsbreytingin verði auglýst samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og felur skipulagssviði að senda breytinguna til athugunar Skipulagsstofnunar.Fylgiskjöl
Hafnarstræti 34 - umsókn um breytt deiliskipulag
Málsnúmer 2019090300Liður 4 í fundargerð skipulagsráðs dagsettri 29. janúar 2020:
Lögð fram að nýju að lokinni auglýsingu, tillaga að breytingu á deiliskipulagi fyrir Hafnarstræti 34. Tillagan er lögð fram ásamt umsögn Minjastofnunar dagsett 20. janúar 2020, tveimur athugasemdum sem bárust á kynningartíma og bréfi Þorgeirs Jónssonar arkitekts, fyrir hönd umsækjanda, þar sem fram koma viðbrögð við efni innkominna athugasemda og drög að aðaluppdráttum fyrirhugaðra húsa. Þá er einnig lögð fram tillaga sviðsstjóra skipulagssviðs að svörum við innkomnum athugasemdum.
Tillagan er lögð fram með þeirri breytingu að í skilmálum er sett ákvæði um að breidd húsa megi að hámarki vera 9 m og lengd 15 m.
Skipulagsráð leggur til við bæjarstjórn að tillagan verði samþykkt með breytingum á skilmálum til að koma á móts við innkomnar athugasemdir og jafnframt að umsögn um athugasemdir verði samþykkt.Ingibjörg Ólöf Isaksen kynnti tillögu skipulagsráðs.
Bæjarstjórn samþykkir deiliskipulagsbreytinguna með 11 samhljóða atkvæðum (með þeirri breytingu að breidd húsa megi að hámarki vera 9 m og lengd 15 m) og felur skipulagssviði að ganga frá gildistöku breytingarinnar.Fylgiskjöl
Kostnaðar- og sviðsmyndagreining um uppbyggingu íþróttamannvirkja
Málsnúmer 2019020227Umræða um skýrslu starfshóps um nýframkvæmdir íþróttamannvirkja næstu 15 árin.
Halla Björk Reynisdóttir kynnti skýrsluna.
Í umræðum tóku til máls Gunnar Gíslason, Guðmundur Baldvin Guðmundsson, Ingibjörg Ólöf Isaksen, Sóley Björk Stefánsdóttir, Gunnar Gíslason, Hlynur Jóhannsson, Halla Björk Reynisdóttir og Þórhallur Jónsson.Fylgiskjöl
Skýrsla bæjarstjóra
Málsnúmer 2010090095Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri fór yfir helstu atriði í störfum sínum frá síðasta fundi bæjarstjórnar.