Framkvæmdaráð - 337
- Kl. 11:00 - 13:45
- Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 337
Nefndarmenn
- Halla Björk Reynisdóttirformaður
- Eiríkur Jónsson
- Ingibjörg Ólöf Isaksen
- Jón Orri Guðjónsson
- Þorsteinn Hlynur Jónsson
- Hermann Ingi Arasonáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Helgi Már Pálssonbæjartæknifræðingur ritaði fundargerð
- Jónas Valdimarssonverkefnastjóri hönnunar
Fjárhagsáætlun 2017- framkvæmdadeild
Málsnúmer 2016080098Lögð fram tillaga að framkvæmdaáætlun fyrir árið 2017 og starfsáætlun kynnt.
Jónas Vigfússon forstöðumaður Umhverfismiðstöðvar sat fundinn undir þessum lið.Meirihluti framkvæmdaráðs samþykkir framlagða framkvæmdaáætlun fyrir árið 2017 og vísar henni til bæjarráðs.
Jón Orri Guðjónsson D- lista og Þorsteinn Hlynur Jónsson Æ- lista sátu hjá.
Starfsmönnum falið að vinna 3ja ára áætlun fyrir árin 2018 - 2020 og leggja fyrir næsta fund.
Fjárhagsáætlun 2016 - framkvæmdadeild
Málsnúmer 2015080078Lögð fram staða á verklegum framkvæmdum og Umhverfisátaki fyrir árið 2016 og rætt um rekstrarkostnað ferliþjónustu Akureyrar og möguleg kaup á nýrri bifreið fyrir ferliþjónustuna.
Jónas Vigfússon forstöðumaður Umhverfismiðstöðvar sat fundinn undir þessum lið.Framkvæmdaráð samþykkir að keyptur verði nýr ferlibíll og farið verði í útboð á viðbótarkeyrslu fyrir ferliþjónustu.
Umhverfis- og samgöngustefna
Málsnúmer 2015010196Lögð fram drög að Umhverfis- og samgöngustefnu Akureyrar.
Afgreiðslu frestað til næsta fundar.