Stjórn Akureyrarstofu - 87
- Kl. 16:00 -
- Fundarherbergi Akureyrarstofu í menningarhúsinu Hofi
- Fundur nr. 87
Nefndarmenn
- Halla Björk Reynisdóttirformaður
- Sigmundur Ófeigsson
- Jón Hjaltason
- Helena Þuríður Karlsdóttir
- Sóley Björk Stefánsdóttir
- Þórgnýr Dýrfjörðfundarritari
Samráðsfundir með forstöðumönnum menningarstofnana 2011 - Sinfóníuhljómsveit Norðurlands
Málsnúmer 2011010066Elín Lýðsdóttir, Guðmundur Óli Gunnarsson, Gunnar Frímannsson, Magna Guðmundsdóttir og Júlíus Júlíusson frá Sinfóníuhljómsveit Norðurlands komu á fundinn og gerðu grein fyrir starfseminni á síðasta ári og framtíðarstefnu sveitarinnar. Fram kom að flutningur hljómsveitarinnar í Hof hefur breytt miklu í starfsemi SN, gestum á tónleika hefur fjölgað og sala árskorta hefur gengið vel. Á móti kemur að kostnaður hefur aukist, en ljóst er að húsið mun færa hljómsveitinni mjög aukin tækifæri á næstu árum.
<DIV>Stjórnin þakkar fulltrúum SN fyrir komuna og lýsir yfir ánægju með hve starfsemi hljómsveitarinnar fer vel af stað í menningarhúsinu Hofi.</DIV>
Atvinnuátaksverkefni Akureyrarbæjar - verklagsreglur 2011
Málsnúmer 2011010068Farið yfir drög að endurskoðuðum reglum um átaksverkefni Akureyrarbæjar og Vinnumálastofnunnar.
<DIV>Afgreiðslu frestað til næsta fundar.</DIV>
Regur fyrir Menningarsjóð Akureyrar - endurskoðun 2011
Málsnúmer 2011010069Farið yfir drög að endurskoðuðum reglum um Menningarsjóð Akureyrar.
<DIV>Afgreiðslu frestað til næsta fundar.</DIV>
Starfsáætlun stjórnar Akureyrarstofu 2011-2014
Málsnúmer 2011010071Farið yfir drög að starfsáætlun fyrir stjórn Akureyrarstofu. \nRætt um helstu verkefni í málaflokkum stjórnarinnar, atvinnu-, ferða-, markaðs- og menningarmálum.
<DIV>Afgreiðslu frestað.</DIV>