Samráðshópur um málefni fatlaðs fólks - 6
- Kl. 16:00 - 17:40
- Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
- Fundur nr. 6
Nefndarmenn
- Guðrún Karitas Garðarsdóttirformaður
- Þórhallur Harðarson
- Halla Birgisdóttir Ottesen
- Sif Sigurðardóttirfulltrúi Þroskahjálpar NE
- Lilja Björg Jónsdóttirfulltrúi Grófarinnar
- Elmar Logi Heiðarssonfulltrúi Sjálfsbjargar
Starfsmenn
- Karólína Gunnarsdóttirfundarritari
Allir með, farsælt samfélag fyrir alla - samstarfsverkefni ÍSÍ, UMFÍ og ÍF
Málsnúmer 2023030395Lagt fram til kynningar samstarfsverkefni íþróttahreyfingarinnar ÍSÍ, UMFÍ og ÍF sem er í vinnslu og felur m.a. í sér að fjölga tækifærum fatlaðra til íþróttaiðkunar.
Ellert Örn Erlingsson forstöðumaður íþróttamála sat fundinn undir þessumn lið og kynnti verkefnið.Akstursþjónusta fyrir fatlað fólk
Málsnúmer 2024020300Samráðshópurinn tók fyrir reglur um asktursþjónustu nýlega. Á þeim fundi kom fram að hópurinn leggur áherslu á að akstursþjónustan geti veitt þá þjónustu sem henni er ætlað að veita og til að svo geti orðið verði fleiri bílum bætt við í þjónustuna. Einnig mikilvægt að skoða þá útfærslu að hægt sé að nota ferðakort allan sólarhringinn sem myndi þá minnka álag á ferlibílana.
Engilbert Ingvarsson verkstjóri strætisvagna/ferliþjónustu sat fundinn undir þessum lið og veitti upplýsingar um þjónustuna.Samráðshópurinn telur að með áframhaldandi aukinni eftirspurn eftir ferliþjónustunni muni þurfa að fjölga ferlibílum mjög fljótlega. Til að minnka álag á ferliþjónustuna og auka ferðafrelsi og sjálfstæði notenda þjónustunnar leggur hópurinn til við umhverfis- og mannvirkjaráð að ákveðið verði að hægt sé að nota ferðakort allan sólahringinn og virði þess hækkað um a.m.k. 400 kr.
Skýrsla stýrihóps um fyrirkomulag þjónustu við börn með fjölþættan vanda
Málsnúmer 2023100235Lögð fram til kynningar skýrsla stýrihóps um fyrirkomulag þjónustu við börn með fjölþættan vanda.