Umhverfis- og mannvirkjaráð - 99
- Kl. 08:15 - 10:42
- Fjarfundur
- Fundur nr. 99
Nefndarmenn
- Andri Teitssonformaður
- Unnar Jónssonvaraformaður
- Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir
- Sigurjón Jóhannesson
- Berglind Bergvinsdóttir
- Jana Salóme I. Jósepsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Guðríður Friðriksdóttirsviðsstjóri umhverfis- og mannvirkjasviðs
- Ketill Sigurður Jóelssonverkefnastjóri ritaði fundargerð
Skátafélagið Klakkur - rekstur á tjaldsvæði á Hömrum
Málsnúmer 2020030764Lagður fram samningur um rekstur á tjaldsvæði Akureyrarbæjar að Hömrum.
Rut Jónsdóttir forstöðumaður umhverfis- og sorpdeildar og Tryggvi Marinósson framkvæmdastjóri Hamra sátu fundinn undir þessum lið.Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir framlagðan samning með einni breytingu. Ráðið samþykkir að gildistíminn verði 10 ár í stað 20 ára.
Hamrar - fráveita
Málsnúmer 2020050193Lagt fram minnisblað dagsett 29. apríl 2021 varðandi opnun tilboða í vinnu við fráveitu frá Hömrum.
Rut Jónsdóttir forstöðumaður umhverfis- og sorpdeildar og Jón Birgir Gunnlaugsson verkefnastjóri umhverfis- og sorpmála sátu fundinn undir þessum lið.Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að ganga til samninga við Þverá Golf ehf. á grundvelli tilboðs þeirra í verkið.
Leikskólinn Klappir við Glerárskóla
Málsnúmer 2018050021Lögð fram stöðuskýrsla dagsett 29. apríl 2021 varðandi framkvæmdir við Leikskólann Klappir.
Kristján Snorrason verkefnastjóri nýframkvæmda sat fundinn undir þessum lið.Lundarskóli - A-álma
Málsnúmer 2020060448Lögð fram stöðuskýrsla dagsett 21. apríl 2021 varðandi framkvæmdir við Lundarskóla A-álmu.
Sigurður Gunnarsson verkefnastjóri nýframkvæmda sat fundinn undir þessum lið.Nökkvi - framkvæmdir
Málsnúmer 2015030205Lagt fram minnisblað dagsett 29. apríl 2021 varðandi byggingu ramps við Nökkva.
Kristján Snorrason verkefnastjóri nýframkvæmda sat fundinn undir þessum lið.Norðurgata 45 - sala
Málsnúmer 2021041494Lagður fram kaupsamningur varðandi sölu á Norðurgötu 45 eh.
Tryggvi Már Ingvarsson B-lista þurfti að víkja af fundi 9:45.
Niðurrif fasteigna 2021
Málsnúmer 2021040661Lagt fram minnisblað dagsett 14. apríl 2021 varðandi fyrirhuguð rif á fasteignum í eigu Akureyrarbæjar.
Snjómokstur og hálkuvarnir
Málsnúmer 2019010353Rætt um fyrirkomulag snjómoksturs á Akureyri.
Rut Jónsdóttir forstöðumaður umhverfis- og sorpdeildar sat fundinn undir þessum lið.Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að nýta heimild í kafla 1.6 í útboðsgögnum um að segja upp samningum við alla verktaka í útboðinu Snjómokstur og hálkuvarnir 2019-2022. Tekur uppsögnin gildi 1. október 2021. Hefja skal samtal við verktaka um breytt verklag og hugmyndir þeirra um hvað má betur fara við framkvæmd snjómoksturs með hag íbúa Akureyrarbæjar að leiðarljósi.
Utanhússmálun, múrviðgerðir og sílanburður
Málsnúmer 2021041493Lagt fram minnisblað dagsett 28. apríl 2021 varðandi opnun tilboða fyrir utanhússmálun, múrviðgerðir og sílanburð á Íþróttamiðstöð Síðuskóla, Amtsbókasafninu, Íþróttamiðstöð Giljaskóla, Hofi og Þórsstúku.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að ganga til samninga við lægstbjóðendur í öllum flokkum.
Utanhússmálun og múrviðgerðir á Amtsbókasafni. - GÞ málverk ehf. kr. 12.844.894.
Utanhússmálun og múrviðgerðir á Íþróttahúsi Síðuskóla. - Litblær ehf. kr. 7.938.200.
Sílanburður á Hofi menningarhúsi, Íþróttahúsi Giljaskóla og Þórsstúku. - GÞ málverk ehf. kr. 5.418.520.Yfirborðsmerkingar - útboð
Málsnúmer 2021041499Lagt fram minnisblað dagsett 28. apríl 2021 varðandi opnun tilboða fyrir yfirborðsmerkingar á Akureyri 2021-2023.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að ganga til samninga við lægstbjóðendur í báðum flokkum að útboðsgögnum uppfylltum.
Yfirborðsmerkingar 2021-2023. - Vegamálun ehf. kr. 19.172.500.
Stakar yfirborðsmerkingar 2021-2023. - Bæjarprýði ehf. kr. 3.497.000.