Stjórn Hlíðarfjalls - 19
- Kl. 13:45 - 15:00
- Fundarherbergi UMSA
- Fundur nr. 19
Nefndarmenn
- Halla Björk Reynisdóttirformaður
- Andri Teitsson
- Eva Hrund Einarsdóttir
Starfsmenn
- Guðríður Friðriksdóttirsviðsstjóri umhverfis- og mannvirkjasviðs
- Brynjar Helgi Ásgeirssonforstöðumaður Hlíðarfjalls
- Steindór Ívar Ívarssonforstöðumaður viðhalds
- Georg Fannar Haraldssonfundarritari
Hlíðarfjall - útboð á veitingarekstri
Málsnúmer 2020120222Á fundi stjórnar Hlíðarfjalls þann 1. september sl. var samþykkt að skoðað yrði með útboð á einstaka þáttum í starfsemi Hlíðarfjalls, s.s. skíðakennsla, veitingarekstur, snjótroðsla og skíðaleiga.
Lögð fram drög að samningi vegna veitingareksturs í Hlíðarfjalli.Stjórn Hlíðarfjalls samþykkir að ganga til samninga við óstofnað hlutafélag Sölva Antonssonar um veitingarekstur í Hlíðarfjalli og felur sviðsstjóra umhverfis- og mannvirkjasviðs að ganga frá samningi.
Hlíðarfjall - rekstur skíðaleigu
Málsnúmer 2021102299Á fundi stjórnar Hlíðarfjalls þann 1. september sl. var samþykkt að skoðað yrði með útboð á einstaka þáttum í starfsemi Hlíðarfjalls, s.s. skíðakennsla, veitingarekstur, snjótroðsla og skíðaleiga.
Lögð fram drög að samningi vegna reksturs skíðaleigu í Hlíðarfjalli.Stjórn Hlíðarfjalls samþykkir að ganga til samninga við Stoðtæki ehf. og Fjallakofann ehf. með skíðaleigu í Hlíðarfjalli og felur sviðsstjóra umhverfis- og mannvirkjasviðs að ganga frá samningi.
Skíðalyfta í Hlíðarfjall
Málsnúmer 2016030107Farið yfir stöðu lyftumannvirkja í Hlíðarfjalli.
Stjórn Hlíðarfjalls felur forstöðumanni viðhalds hjá umhverfis- og mannvirkjasviði að fylgja eftir verklokum og lokaúttekt á lyftumannvirkjum í Hlíðarfjalli.
Hlíðarfjall - gjaldskrá
Málsnúmer 2020090392Framlenging forsöluafsláttar vetrarkorta tekin fyrir.
Sjórn Hlíðarfjalls samþykkir að framlengja forsöluafslátt vetrarkorta til og með 1. janúar 2022.