Bæjarráð - 3818
- Kl. 08:45 - 9:59
- Fundarsalur á 1. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 3818
Nefndarmenn
- Heimir Örn Árnasonformaður
- Hulda Elma Eysteinsdóttirvaraformaður
- Hlynur Jóhannsson
- Sunna Hlín Jóhannesdóttir
- Hilda Jana Gísladóttir
- Brynjólfur Ingvarssonáheyrnarfulltrúi
- Jana Salóme I. Jósepsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Inga Þöll Þórgnýsdóttirbæjarlögmaður ritaði fundargerð
- Olga Margrét Kristínard. Cilia
Íbúaapp Akureyrarbæjar
Málsnúmer 2023090105Farið yfir stöðu og næstu skref varðandi íbúaapp Akureyrarbæjar.
Sumarliði Helgason sviðsstjóri þjónustu- og skipulagssviðs, Jón Þór Kristjánsson forstöðumaður þjónustu og þróunar og Anna Karen Kristinsdóttir verkefnastjóri stafrænnar þróunar sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.Bæjarráð fagnar þeim góðu viðtökum sem íbúappið hefur fengið. Búið er að skilgreina meginmarkmið fyrir annan áfanga og á þeim grunni stendur til að þróa nýja virkni eftir hugmyndasöfnun meðal íbúa. Mikilvægt er að samhliða þeirri vinnu verði lögð áhersla á að kynna núverandi möguleika í appinu, svo sem ábendingagátt og rafrænt gámakort.
Fylgiskjöl
Jöfnunarsjóður sveitarfélaga - ársfundur 2023
Málsnúmer 2023090076Erindi dagsett 1. september 2023 frá innviðaráðuneytinu þar sem boðað er til ársfundar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga sem haldinn verður miðvikudaginn 20. september nk. á Hilton Nordica í Reykjavík. Tilkynna þarf þátttöku fyrir 14. september.
Bæjarráð felur Ásthildi Sturludóttur bæjarstjóra að sækja ársfundinn fyrir hönd Akureyrarbæjar.
Fylgiskjöl
Boð á málþing um byggðaþróunarverkefnið Brothættar byggðir
Málsnúmer 2023082224Lagt fram til kynningar erindi dagsett 29. ágúst 2023 þar sem Byggðastofnun býður til málþings um byggðaþróunarverkefnið Brothættar byggðir fimmtudaginn 5. október nk. Málþingið verður haldið á félagsheimilinu Hnitbjörgum á Raufarhöfn kl. 10:30-16:20. Ráðgert er að viðburðurinn verði einnig sendur út í streymi.
Fylgiskjöl
Félag stjórnenda leikskóla - kjarasamningur 2023 - 2024
Málsnúmer 2023082258Kynning á nýgerðum kjarasamningum Félags stjórnenda leikskóla við Samband íslenskra sveitarfélaga.
Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri mannauðssviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.Bæjarráð felur sviðsstjórum mannauðssviðs og fjársýslusviðs að gera viðauka vegna málsins og leggja fyrir bæjarráð.
Fylgiskjöl
Skólastjórafélag Íslands - kjarasamningur 2023 - 2024
Málsnúmer 2023082257Kynning á nýgerðum kjarasamningi Skólastjórafélags Íslands við Samband íslenskra sveitarfélaga.
Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri mannauðssviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.Bæjarráð felur sviðsstjórum mannauðssviðs og fjársýslusviðs að gera viðauka vegna málsins og leggja fyrir bæjarráð.
Fylgiskjöl