Félagsmálaráð - 1188
- Kl. 10:00 - 12:00
- Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
- Fundur nr. 1188
Nefndarmenn
- Sigríður Huld Jónsdóttirformaður
- Jóhann Gunnar Sigmarsson
- Halldóra Kristín Hauksdóttir
- Svava Þórhildur Hjaltalín
- Valur Sæmundsson
- Guðrún Karitas Garðarsdóttiráheyrnarfulltrúi
- framkvæmdastjóri fjölskyldudeildar
- framkvæmdastjóri ÖA
- framkvæmdastjóri HAK
- framkvæmdastjóri búsetudeildar
- fundarritari
Félagsmálaráð - starfsemi 2014-2018
Málsnúmer 2014060230Rætt um skipulag funda ráðsins á næstunni, fundartíma, þagnarskyldu o.fl.

Ákveðið að fundir félagsmálaráðs verði 1. og 3. miðvikudag hvers mánaðar frá klukkan 14:00-17:00.

Félagsmálaráð, handbók 2014 - 2018
Málsnúmer 2014060229Kynnt rafræn handbók félagsmálaráðs 2014 - 2018. Inga Þöll Þórgnýsdóttir bæjarlögmaður mætti á fundinn kl. 11:00 og kynnti reglur um ábyrgðarmörk og siðareglur kjörinna fulltrúa.

Halldór Guðmundsson framkvæmdastjóri ÖA mætti á fundinn kl. 11:00.
Fjölskyldudeild - Stuðningurinn heim - tilraunaverkefni í félagsþjónustu
Málsnúmer 2012030015Guðrún Sigurðardóttir framkvæmdastjóri fjölskyldudeildar kynnti stöðuna í verkefninu Stuðningurinn heim og fyrirhugaðar breytingar á þjónustunni.
Félagsmálaráð er sammála þeim breytingum sem lagðar eru til og heimilar fyrir sitt leiti að tvær hálfar stöður verði auglýstar til að sinna verkefnum sameinaðs úrræðis.
CONNECT - verkefnið
Málsnúmer 2014060231Halldór Guðmundsson framkvæmdastjóri ÖA og Soffía Lárusdóttir framkvæmdastjóri búsetudeildar greindu frá erindi Norrænu velferðarmiðstöðvarinnar (NVC) þar sem leitað er eftir þátttöku fulltrúa félagslegarar þjónustu sveitarfélagsins í norræna verkefninu CONNECT. Áformað er að tvö sveitarfélög frá hverju norðurlandanna taki þátt og mögulega líka fulltrúi frá landssamböndum sveitarfélaga. Um er að ræða áhersluverkefni á vegum NVC sem hefst með undirbúningi nú í haust 2014. Verkefnið felur í sér skipulagningu og innleiðingu á velferðartækni í framkvæmd velferðarþjónustu. Kostnaður vegna þátttöku er greiddur af NVC og ráðgert að innleiðingu fylgi fjárstyrkur til þeirra sveitarfélaga sem taka þátt verkefninu. Verkefninu er skipt í tvö stig þar sem fyrst er undirbúningur og skipulagning (2014) og síðan innleiðingarferli og prófun ásamt miðlun reynslu (2015-2016).

Félagsmálaráð samþykkir að Halldór Guðmundsson framkvæmdastjóri ÖA og Soffía Lárussdóttir framkvæmdastjóri búsetudeildar taki þátt í CONNECT verkefninu fyrir hönd Akureyrarbæjar.

Heilsugæslustöðin á Akureyri - samningar við ríkið
Málsnúmer 2014020032Málefni Heilsugæslustöðvarinnar á Akureyri kynnt og rædd.

Félagsmálaráð vísar umræðu um Heilsugæslustöðina á Akureyri til bæjarráðs til frekari viðræðna við stjórnvöld.

Málaflokkur fatlaðra í Eyjafirði - ársskýrslur
Málsnúmer 2012030171Lögð fram til kynningar ársskýrsla 2013, skýrsla sameiginlegs þjónustusvæðis í Eyjafirði um þjónustu við fatlað fólk.

Óskað tilnefninga í nefnd um stjórnsýslu á sviði félagsþjónustu og barnaverndar
Málsnúmer 2014060232Með bréfi dags 24. júní 2014 óskar velferðarráðuneytið eftir tilnefningu frá Akureyrarbæ um einn aðila í nefnd um stjórnsýslu ríkisins á sviði félagsþjónustu og barnavendar.
Félagsmálaráð samþykkir að skipa Guðrúnu Sigurðardóttur framkvæmdastjóra fjölskyldudeildar í nefndina.