Stjórn Akureyrarstofu - 143
30.05.2013
Hlusta
- Kl. 16:00 - 18:30
- Borgarsalur í Samkomuhúsinu
- Fundur nr. 143
Nefndarmenn
- Halla Björk Reynisdóttirformaður
- Sigmundur Ófeigsson
- Jón Hjaltason
- Hildur Friðriksdóttir
- Helena Þuríður Karlsdóttir
- Helgi Vilberg Hermannssonáheyrnarfulltrúi
- Sigfús Arnar Karlssonáheyrnarfulltrúi
- Unnsteinn Jónssonáheyrnarfulltrúi
- Þórgnýr Dýrfjörðfundarritari
Leikfélag Akureyrar - sameiginlegur fundur
Málsnúmer 2013010067Á fundinum hittust stjórnir Akureyrarstofu og Leikfélags Akureyrar til skrafs og ráðagerða. Ragnheiður Skúladóttir leikhússtjóri fór yfir áætlun um starfsemi á næsta leikári, bæði eigin framleiðslu félagsins, gestasýningar, samstarfsverkefni við önnur leikhús og menningarstofnanir og loks starfsemi leiklistarskóla LA. Framkvæmdastjóri kynnti í kjölfarið rekstraráætlun félagsins fyrir komandi leikár eins og hún lítur út nú.\nÍ kjölfarið spunnust fjölbreytilegar umræður um starfsárið og þau viðfangsefni sem LA stendur frammi fyrir.
<DIV><DIV>Stjórn Akureyrarstofu þakkar stjórn Leikfélagsins fyrir greinargóðar upplýsingar sem fram komu á fundinum og góðar umræður sem fram fóru og óskar félaginu velfarnaðar á komandi afmælisleikári.</DIV></DIV>