Atvinnumálanefnd - 11
- Kl. 16:00 - 18:10
- Fundarsalur á 2. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 11
Nefndarmenn
- Matthías Rögnvaldssonformaður
- Erla Björg Guðmundsdóttir
- Þorlákur Axel Jónsson
- Elías Gunnar Þorbjörnsson
- Stefán Guðnason
- Sóley Björk Stefánsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Albertína Friðbjörg Elíasdóttirfundarritari
Brothættar byggðir
Málsnúmer 2015070054Verkefnastjóri atvinnumála greindi frá fundum sem haldnir voru út í Grímsey fyrr í vikunni með fulltrúum útgerða og starfshópi ríkisstjórnarinnar.
FabLab Akureyri
Málsnúmer 2014090260Lagður fram samningur vegna stofnunar Hollvinasamtaka Fabey, en tilgangur félagsins er er að koma á fót og reka stafræna smiðju, FabLab í Eyjafirði. Með rekstri á stafrænni smiðju FabLab í Eyjafirði er stefnt á að auka þekkingu skólafólks og almennings á persónumiðaðri framleiðslu og stafrænum framleiðsluaðferðum. Verkefninu er ætlað að auka áhuga á verk- og tækninámi í grunn- og framhaldsskólum, auka almennt tæknilæsi og tæknivitund og efla hæfni til nýsköpunar í námi og atvinnulífi. Markmið verkefnisins er enn fremur að skapa vettvang fyrir nýsköpun og efla samkeppnishæfni fyrirtækja, menntastofnana og nemenda.
Atvinnumálanefnd leggur til við bæjarstjórn að Akureyrarbær taki þátt í stofnun Hollvinasamtaka Fabey.
Þegar hér var komið yfirgaf Stefán Guðnason Æ-lista fundinn kl. 17:00.
Heimsókn rektors Háskólans á Akureyri
Málsnúmer 2015030265Rektor Háskólans á Akureyri, Eyjólfur Guðmundsson, mætti til fundar með atvinnumálanefnd sem ræddi um mikilvægi háskólans sem hluta af atvinnustarfsemi sveitarfélagsins og landsbyggðarinnar allrar.
Atvinnumálanefnd þakkar Eyjólfi fyrir komuna á fundinn.
Atvinnumálanefnd lýsir yfir vonbrigðum með óeðlilega lág framlög til Háskólans á Akureyri, sérstaklega ef miðað er við aðrar háskólastofnanir í landinu.