Framkvæmdaráð - 329
- Kl. 09:35 - 11:55
- Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 329
Nefndarmenn
- Halla Björk Reynisdóttirformaður
- Helena Þuríður Karlsdóttir
- Ingibjörg Ólöf Isaksen
- Njáll Trausti Friðbertsson
- Þorsteinn Hlynur Jónsson
- Hermann Ingi Arasonáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Helgi Már Pálssonbæjartæknifræðingur
- Jónas Valdimarssonverkefnastjóri hönnunar
- Jón Birgir Gunnlaugssonverkefnastjóri umhverfismála ritaði fundargerð
SVA - nýtt leiðakerfi 2016
Málsnúmer 2016050033Farið yfir vinnu við endurskoðun á leiðakerfi SVA.
Rúna Ásmundsdóttir umferðarverkfræðingur hjá Eflu verkfræðistofu mætti á fundinn.Framkvæmdaráð þakkar Rúnu fyrir kynninguna.
Fjárhagsáætlun 2016 - framkvæmdadeild
Málsnúmer 2015080078Farið yfir framkvæmdaáætlun og umhverfisverkefni ársins 2016 og og staðan kynnt á þeim verkum sem eru í gangi í dag.
Þorsteinn Hlynur Jónsson Æ-lista bar upp vanhæfi sitt vegna umræðna um framkvæmdir í Naustahverfi og var það samþykkt. Vék hann af fundi við þær umræður.
Smáverk fyrir Akureyrarbæ 2016-2017
Málsnúmer 2016040124Kynntar niðurstöður opnunartilboðs sem opnuð voru 11. maí sl.
Framkvæmdaráð samþykkir að ganga til samninga við lægstbjóðendur.
Mannauðsstefna Akureyrarbæjar - umsagnir nefnda
Málsnúmer 2016050019Óskað er eftir umsögn framkvæmdaráðs um mannauðsstefnu Akureyrarbæjar
Framkvæmdaráð telur að stefnan sé of löng, nokkuð um endurtekningar og ábyrgðaraðilar séu of margir.
Önnur mál í framkvæmdaráði 2016
Málsnúmer 2016010009Ingibjörg Ólöf spyr um rusladalla í Giljahverfi og óskar eftir að fá sent kort af þéttleika þeirra. Óskar eftir að bætt verði við rusladöllum ef í ljós kemur að of fáir dallar eru á svæðinu.